Meðhöndlun með fljótandi köfnunarefni

Meðhöndlun með fljótandi köfnunarefni

Prenta

Leiðbeiningar vegna frystingar með fljótandi köfnunarefni.

Oftast myndast blaðra undir og í kringum vörtuna. Vökvinn er oftast tær, en getur stundum orðið blóðlitaður. Þetta er eðlilegt og ekki merki um sýkingu.

  • Ef blaðran er spennt og sársaukafull, er hægt að sjóða nál í 5 mín. Og gera með henni gat á blöðruna á mörgum stöðum. Klippið ekki upp blöðruna
  • Ef þú hefur þrátt fyrir þetta mikil óþægindi, getur þú lagt grisjur vættar í köldu vatni á blöðruna. Skiptu á grisjum eða bleyttu þær aftur ef þær þorna.
  • Þegar blaðran losnar af er gott að setja yfir frystu vörtuna umbúðir sem lofta vel
  • Ef meðferðin hefur borið tilætlaðan árangur hverfur vartan á 2-3 vikum, annars verður að meðhöndla hana aftur að 3 vikum liðnum.
  • Í sumum tilvikum þarf að endurtaka meðferðina oft.

Leiðbeiningar vegna penslunar á vörtur

  • Læknirinn penslar vörtuna með sterku frumudrepandi og blöðrumyndandi efni og þekur síðan með plástri.
  • Mismunandi er hve lengi efnið er haft á, en það getur verið allt frá 1-24 klst.
  • Algengast er eð efnið sé látið virka í 4 klst. Læknirinn þinn segir til um hve lengi efnið á að vera á vörtunni.
  • Að þeim tíma liðnum er plásturinn fjarlægður og eiturefnið þvegið með volgu vatni af vörtunni
  • Ef mikill verkur eða bólga myndast má fjarlægja plásturinn fyrr en ráðlagt var.
  • Oft myndast blaðra og má þá fylgja leiðbeiningum hér að ofan.
  • Ef verkur er slæmur má taka verkjalyf í nokkra daga
  • Bólga og blöðrumyndun er oft meiri en við frystingu. Í sumum tilvikum er roði í kringum svæðið þar sem var meðhöndlað.

Nánar á (enskur texti):

dnnz-small