Sunekos

Ert þú með bauga undir augum eða er húðin búin að tapa teygjanleika sínum þannig að línur og jafnvel pokar eru farnir að myndast? Finnst þér augnkremin ekki skila tilætluðum árangri? Þá gæti meðferð með Sunekos hentað þér.

Hvað er Sunekos?

Sunekos er ný meðferð þar sem hreinni hyaluronsýru ásamt aminósýrum er sprautað í húðina kringum augun. Þetta efni er örþunnt og því ekki eins og hefðbundin fylliefni sem eru notuð til að byggja upp tap á fitu- og stoðvefjum undir húðinni. Sunekos örvar bandvefsfrumur húðarinnar til að framleiða meira kollagen og elastín svo að bæði þéttleiki húðarinnar verður betri ásamt því að fínar línur mildast.

Hvernig fer meðferðin fram?

Sunekos meðferðinni er skipt niður í þrjár meðferðarlotur þar sem efninu er sprautað með örþunnri nál á nokkra staði kringum augun á 2ja vikna fresti. Meðferðin tekur aðeins um 15 mínútur í hvert skipti og mælt er með viðhaldsmeðferð á hálfs árs fresti til að viðhalda hámarksárangri.

Hvað gerist eftir meðferðina?

• Stuttu eftir meðferðina myndast vægur bjúgur kringum augun sem getur verið sjáanlegur í 1-2 daga.
• Stundum kemur fram mar eftir stungurnar sem þá varir yfirleitt í 5-7 daga.
• Ekki nota farða í eina klukkustund eftir meðhöndlunina.
• Ekki stunda líkamsrækt eða líkamlegt erfiði í einn sólarhring.
• Ekki gangast undir aðrar meðferðir á meðferðarsvæðinu í 2 sólarhringa eftir meðferðina.

Strax eftir meðferðina:
Þremur klukkustundum eftir meðferðina:
Hvenær sést árangur Sunekos meðferðar?

Árangurinn sést einum mánuði eftir fyrsta skiptið en margir sjá mikinn árangur strax eftir fyrsta skiptið. Ef þú vilt vita meira um meðferðina og hvort hún henti þér, pantaðu þér tíma hjá okkur í viðtal og skoðun í síma 520-4407 eða sendu okkur tölvupóst á laser@hls.is.

Fyrir og eftir myndir:
Nánari upplýsingar á ensku:
Hafðu samband

Hægt er að bóka tíma hjá lækni
frá kl. 9:00 – 12:00 og 13:00 – 15:30
Sími 520 4444

Ljósameðferð
Sími 520 4408

Sendu okkur tölvupóst
timabokun@hls.is

 

Spjallaður við okkur á
Facebook Messenger

    Húðlæknastöðin

    Smáratorg 1,
    201 Kópavogur,
    Iceland

    Opið virka daga
    8:00 – 16:00

    Skiptiborð er opið
    9:00 – 12:00
    13:00 – 15:30

    © Húðlæknastöðin ehf. – Með notkun á vefnum samþykkir notandi notkunarskilmála hans – Notkunarskilmálar og yfirlýsing um persónuvernd