Toxín

Meðferð á hrukkum með vöðvaslakandi efni hefur verið notað í áratugi. Í dag er meðferðin hins vegar algengasta fegrunarmeðferðin og voru t.d 7,2 milljónir meðferða framkvæmdar í Bandaríkjunum árið 2017.

Meðferðarsvæði

Algeng meðferðarsvæði eru t.d. reiðihrukkurnar á milli augna, broshrukkur í kringum augun og láréttu línurnar á enninu. Vöðvaslakandi efni er sprautað í vöðva eða húð og kemur í veg fyrir taugaboðin sem valda vöðvasamdrætti á meðferðarsvæði. Línur og hrukkur sem hafa myndast vegna andlitshreyfinga í gegnum árin, t.d. við bros eða við það að setja í brýrnar á móti sólinni, mýkjast og verða minna sýnilegar.
Vöðvaslakandi efni er einnig mikið notað í læknisfræðilegum tilgangi eins og t.d. gegn óhóflegri svitamyndun í holhöndum.
Einungis læknar með viðeigandi réttindi og sérfræðikunnáttu mega gefa vöðvaslakandi efni.

Til að fá frískara og úthvíldara útlit eru fylliefni oft notuð samhliða vöðvaslakandi efnis. Fylliefnin geta gefið húðinni unglegra yfirbragð, bætt upp vef sem tapast hefur með árunum á t.d. yfir kinnbeinum og svæðinu milli nefs og munnviks auk þess sem þau geta fyllt upp í djúpar hrukkur og gefið fyllri varir. Frekari upplýsingar um fylliefni má lesa hér.

Hvenær á meðferð við?

● Þegar lóðréttar hrukkur eru sýnilegar á milli augabrúna þegar hleypt er í brýrnar.

● Til þess að minnka áberandi krákufætur – hrukkur til hliðar við augu sem koma fram þegar brosað er breitt.

● Til þess að minnka ásýnd láréttra hrukka á enni.

● Til þess að minnka virkni sterkra vöðva í kringum augu og á enni sem geta valdið hrukkum með tímanum.

Ekki er æskilegt að meðhöndla þungaðar konur eða konur með barn á brjósti.

Algengara er að meðhöndla hrukkur og fínar línur sem þegar eru sýnilegar. Þó er fyrirbyggjandi meðferð einnig möguleiki og á einkum við þegar andlitsvöðvar eru sterkir og eða tilhneiging til þess að mynda djúpar hrukkur er til staðar.

Fyrir og eftir myndir eftir mesoblend meðferð í krákufætur og fyrir ofan efri vör.

Fyrir og eftir myndir eftir mesoblend meðferð í krákufætur og fyrir ofan efri vör.

Fyrir og eftir mynd eftir vöðvaslakandi efni í krákufætur.

Fyrir og eftir mynd eftir vöðvaslakandi efni í enni.

Fyrir og eftir mynd eftir vöðvaslakandi efni í enni.

Hverjir eru kostir og ókostir meðferðarinnar?

Helstu kostir við vöðvaslakandi efni eru að meðferðin er örugg, sársauki er lítill og batatími stuttur. Fínar línur og hrukkur minnka til muna og yfirbragð húðarinnar verður unglegra og ferskara.

Helstu ókostir við vöðvaslakandi efni eru að árangurinn er tímabundinn. Meðferð þarf að endurtaka á 3–6 mánaða fresti til þess að viðhalda því yfirbragði sem óskað er eftir. Því er algengt að koma 1–2 sinnum á ári í meðferð. Auk þess getur komið mar á stungusvæði, einkum ef svæðið er viðkvæmt, sem jafnar sig þó á um viku.

Hvernig fer meðferðin fram?

Í fyrsta viðtali eru óskir hvers og eins ræddar og farið yfir meðferðarmöguleika til að fá fram því sem óskað er eftir. Fyrsta viðtal er ávallt undanfari meðferðar. Einnig er farið í gegnum heilsufarssögu og undirbúning fyrir meðferð.

Litlu magni af vöðvaslakandi efni er sprautað með fínni nál á nokkra stungustaði á því svæði sem á að meðhöndla og tekur meðferðin um 10–20 mínútur. Hægt er að óska eftir staðdeyfingu með deyfikremi ef ástæða er til. Þá þarf að mæta einni klukkustund fyrir meðferðartímann.

Hvað gerist eftir meðferðina?

Meðferðin er oftast ummerkjalaus og flestir geta snúið beint til vinnu eða skóla. Hvíld er ekki nauðsynleg eftir meðferð en mælt er með því að takmarka líkamlegt álag fyrsta sólarhringinn og t.d. sleppa líkamsrækt. Ef tilhneiging til myndunar marbletta er til staðar gæti komið fram mar á stungusvæðinu. Mælt er með því að nota andlitsvöðvana á meðferðarsvæðinu eins mikið og hægt er eftir meðferð, því það eykur áhrif hennar. Þó ber að varast að þrýsta á stungusvæðið eða nudda það, því það gæti valdið því að efnið fari út í nærliggjandi vöðva sem ekki átti að meðhöndla.

Árangur meðferðarinnar sést ekki strax. Efnið byrjar að virka eftir nokkra daga en getur tekið allt að tvær vikur að ná fullri verkun. Þess vegna eru bókaðir endurkomutímar um það bil tveimur vikum eftir meðferð þar sem árangurinn er metinn. Endurkomutímar eru sjúklingum að kostnaðarlausu.

Hafðu samband

Hægt er að bóka tíma hjá lækni
frá kl. 9:00 – 12:00 og 13:00 – 15:30
Sími 520 4444

Ljósameðferð
Sími 520 4408

Sendu okkur tölvupóst
timabokun@hls.is

 

Spjallaður við okkur á
Facebook Messenger

    Húðlæknastöðin

    Smáratorg 1,
    201 Kópavogur,
    Iceland

    Opið virka daga
    8:00 – 16:00

    Skiptiborð er opið
    9:00 – 12:00
    13:00 – 15:30

    © Húðlæknastöðin ehf. – Með notkun á vefnum samþykkir notandi notkunarskilmála hans – Notkunarskilmálar og yfirlýsing um persónuvernd