HYDRAFACIAL MEÐFERÐ

Meðferðin

● Djúphreinsar
● Losar um dauðar húðfrumur
● Jafnar litabletti
● Sótthreinsar
● Róar
● Gefur ljóma
● Eflir kollagen og elastin nýmyndun
● Eykur teygjanleika
● Dregur úr öldrun og umhverfisáhrifum
● Gefur raka

Það má segja að HydraFacial sé hin fullkomna alhliða andlitsmeðferð. Þessi margverðlaunaða og háþróaða meðferð hefur vaxið í vinsældum um allan heim síðastliðin ár. Meðferðin er margþætt, þ.e. felur í sér margar meðferðir í einni  og er örugg fyrir einstaklinga á öllum aldri, óháð húðgerð og húðlit.  

Meðferðin tekur einungis 30 til 60 mínútum og þú sérð strax sjáanlegan mun. 

Hvað er Hydrafacial?

HydraFacial nýtir einkaleyfi á einstakri hringiðu tækni (e. vortex fusion) til að hreinsa húðina, fjarlægja dauðar húðfrumur og ná óhreinindum upp úr svitaholum.  Auk þess hefur HydraFacial tæknin einstaka eiginleika að koma efnum inn í húðina á sem áhrifamestan hátt en valin eru serum sem henta húð hvers og eins. HydraFacial meðferðin hefst á því að bera mildar sýrur á húðina, því næst eru sett róandi og rakagefandi efni sem hægja á og fyrirbyggja öldrun húðar. Þessi efni eru til dæmis andoxunarefni, hýalúronik sýra og virk peptíð.

HydraFacial meðferðin er aðlöguð að því hvaða markmiðum þú vilt ná varðandi húðumhirðu þína. Svo er aukalega hægt að fá sérstaka augn- og varameðferð.

Hvaða týpur af meðferð er hægt að velja um?

Hydrafacial Signature meðferð

5 þrepa meðferð:
1. Hreinsun og djúphreinsun með hreinsi sem inniheldur AHA ávaxtasýrur sem djúphreinsa húðina og opna húðina vel fyrir næsta skref.
2. Glysal prep – Glycolic (AHA sýra) og salisylic (BHA) sýra borið á allt andlit með tækinu, sem djúphreinsar enn frekar og losar um dauðar húðfrumur (sbr.húðslípun)
3. Beta-HD lausn sem inniheldur salisylic sýru sem losar um óhreinindi og húðfitu, ásamt góðum raka er síðan borinn á með tækinu sem sogar upp á sama tíma óhreinindi, stíflur og fílapensla, meðal annars á T svæði.
4. Ef mikil óhreinindi og roði á meðferðarsvæðinu þá er meðferð með bláum LED ljósum bætt við og haldið yfir húðinni til að róa húðina og hraða bata.
5. Anti-Ox lausn sem inniheldur góða blöndu af peptíðum, hyalúronik sýru, C-vítamíni og öðrum andoxandi og rakagefandi efnum er síðan þrýst niður i húðina, til að rakagefa, stinna, auka teygjanleika og draga úr öldrunar og umhverfisáhrifum.

Hydrafacial Deluxe meðferð

6 þrepa meðferð:
1. Hreinsun og djúphreinsun með hreinsi sem inniheldur AHA ávaxtasýrur sem djúphreinsa húðina og opna húðina vel fyrir næsta skref.
2. Glysal prep – Glycolic (AHA sýra) og salisylic (BHA) sýra borið á allt andlit með tækinu, sem djúphreinsar enn frekar og losar um dauðar húðfrumur (sbr.húðslípun)
3. Beta-HD lausn sem inniheldur salisylic sýru sem losar um óhreinindi og húðfitu, ásamt góðum raka er síðan borinn á með tækinu sem sogar upp á sama tíma óhreinindi, stíflur og fílapensla, meðal annars á T svæði.
4. Rakabooster – metið eftir þörfum hvers og eins. (anti-aging – vinnur á línum/hrukkum og litablettum ásamt því að gefa ljóma.)
Rakabooster er borinn á með tækinu og þrýst ofan í línur eða litabletti.
5. Rauð og/eða blá LED ljós látin svífa rétt yfir andlitið í 4 mín til að auka á áhrif meðferðarinnar, auka endurbata og róa.
6. Anti-Ox lausn sem inniheldur góða blöndu af peptíðum, hyalúronik sýru, C-vítamíni og öðrum andoxandi og rakagefandi efnum er síðan þrýst niður i húðina, til að rakagefa, stinna, auka teygjanleika og draga úr öldrunar og umhverfisáhrifum.

Er HydraFacial meðferðin örugg?

Þessi meðferð er örugg og hentar öllum húðtegundum, líka viðkvæmri húð. Ef þú hefur einhverjar spurningar þá er hægt að fá álit starfsmanna Húðlæknastöðvarinnar.

Algengar spurningar:

Er ég lengi að jafna mig eftir meðferðina?
Langflestir eru fljótir að jafna sig og þú getur gert það sem þú ert vön/vanur að gera strax eftir HydraFacial. Einstaka sinnum upplifir fólk vægan roða í andlitinu en það jafnar sig yfirleitt fljótt. Við mælum með að þú berir á þig sólarvörn til að vernda húðina gegn UV geislum.

Er mælt með að blanda öðrum meðferðum með HydraFacial meðferðinni?
Það fer eftir því hvaða meðferðum þú hefur áhuga á en að sjálfsögðu! Spjallaðu við starfsmenn Húðlæknastöðvarinnar en þar eru þrautreyndir læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og snyrtifræðingar sem geta hjálpað þér að velja meðferðir sem henta þér og húðinni þinni.

Við hverju get ég búist eftir meðferðina?
Flestir sjá mun strax eftir meðferðina. Húðin verður tandurhrein, sléttari og fær meiri ljóma. Við mælum með meðferð mánaðarlega til að fá sem bestu og varanlegustu útkomuna.

Húðlæknastöðin býr yfir áralangri reynslu í húð- og lasermeðferðum og býður ávallt uppá nýjustu tækni. Meðferðir eru framkvæmdar af læknum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og snyrtifræðingum með mikla reynslu.

Húðlæknastöðin er eina stofan á landinu sem bíður upp á HydraFacial andlitsmeðferð.

Fyrir og eftir myndir
Hafðu samband

Hægt er að bóka tíma hjá lækni
frá kl. 9:00 – 12:00 og 13:00 – 15:30
Sími 520 4444

Ljósameðferð
Sími 520 4408

Sendu okkur tölvupóst
timabokun@hls.is

Spjallaðu við okkur á
Facebook Messenger

    Húðlæknastöðin

    Smáratorg 1,
    201 Kópavogur,
    Iceland

    Opið virka daga
    8:00 – 16:00

    Skiptiborð er opið
    9:00 – 12:00
    13:00 – 15:30

    © Húðlæknastöðin ehf. – Með notkun á vefnum samþykkir notandi notkunarskilmála hans – Notkunarskilmálar og yfirlýsing um persónuvernd