Profhilo

Profhilo er margverðlaunuð húðmeðferð sem kom á markaðinn árið 2015 og nýtur vaxandi vinsælda.

Hvað er Profhilo?

Profhilo samanstendur af hreinni hyaluronic sýru sem gefur náttúrulegt og frísklegt útlit án þess að breyta útliti eða andlitsdrættum að neinu leyti. Meðferðin örvar nýmyndun kollagens og elastíns í húðinni og byggir þannig upp og styrkir húðina, eykur þéttleika og teygjanleika hennar ásamt því að vera mjög rakagefandi. Þessi meðferð hentar því mjög vel einstaklingum sem eru farnir að finna fyrir slappleika í húðinni og vilja byggja upp þéttleika hennar. Profhilo vinnur mjög vel með öðrum húðlýtameðferðum eins og toxínum, fylliefnum, medical peeling, dermapen og lasermeðferðum.

Hver er munurinn á Profhilo, Skinbooster og fylliefnum?

Profhilo er hvorki fylliefni né skinbooster þar sem hyaluronic sýran er meðhöndluð á allt annan hátt. Fylliefni eru almennt notuð til að bæta upp vefjatap (volume) í andliti, yfirleitt þá bæði tap á undirliggjandi fitu- sem og beinvef. Til að hyaluronic sýran sé hentug til slíks er hún krossbundin með próteinum til að þétta hana og til að líkaminn brjóti hana ekki fljótt niður. Hyaluronic sýran í Profhilo er aftur á móti ekkert krossbundin og létt í sér, nánast eins og vatn, þannig að þegar henni er sprautað undir húðina getur hún dreift sér vel á stór svæði. Fylliefni og skinbooster örva vissulega einnig bandvefsfrumurnar þegar þeim er sprautað í húðina en ekki eins kröftuglega og Profhilo gerir. Profhilo bætir ekki upp tap á fituvef eða beinvef (volume) eins og hefðbundin fylliefni gera og því verður engin breyting á andlitsdrættum eða útliti. Húðin verður hins vegar sléttari, þéttari og meira ljómandi.

Hvernig fer meðferðin fram?

Meðferðinni er skipt í 2 meðferðarlotur með 4. vikna millibili. Profhilo er sprautað grunnt í húðina á nokkra vel valda staði sem eru mismunandi eftir því hvaða líkamshluta er verið að meðhöndla. Helstu meðferðarsvæðin eru andlit, háls, bringa og upphandleggir en í raun er hægt að nota Profhilo á hvaða líkamssvæði sem er, t.d. magasvæði og kringum hné.

Hvað gerist eftir meðferðina?

● Eftir meðferðina sjást gjarnan litlir hnúðar þar sem efninu var sprautað í húðina. Yfirleitt hverfa þeir innan 4-6 klst en geta varað í allt að 24 klst.
● Hægt er að gera ráð fyrir því að snúa aftur til vinnu daginn eftir meðhöndlunina.
● Þú getur fengið mar eftir stungurnar sem þá varir yfirleitt bara nokkra daga.
● Ekki nota farða í eina klst. eftir meðhöndlun.
● Ekki stunda líkamsrækt eða líkamlegt erfiði í sólarhring .
● Ekki gangast undir aðrar meðferðir á meðferðarsvæðinu í 2 sólarhringa eftir meðferðina.

Hvenær sést árangur meðferðarinnar?

Hyaluronic sýran í Profhilo endist í húðinni í um það bil 28 daga. Á þeim tíma dreifist hún hægt og þétt um húðina og örvar bandsfrumur í leðurhúðinni til að mynda kollagen og elastín. Hámarksárangur sést 2-3 mánuðum eftir meðferðarlotu nr. 2 og helst árangurinn í um það bil 6-12 mánuði. Mælt er með einni meðferð á 6-12 mánaða fresti til að viðhalda árangrinum.

Fyrir og eftir myndir:
Hendur fyrir og eftir Profhilo meðferð
Háls fyrir og eftir Profhilo
Andlit fyrir og eftir Profhilo meðferð
Upphandleggur fyrir og eftir Profhilo
Hafðu samband

Hægt er að bóka tíma hjá lækni
frá kl. 9:00 – 12:00 og 13:00 – 15:30
Sími 520 4444

Ljósameðferð
Sími 520 4408

Sendu okkur tölvupóst
timabokun@hls.is

 

Spjallaður við okkur á
Facebook Messenger

    Húðlæknastöðin

    Smáratorg 1,
    201 Kópavogur,
    Iceland

    Opið virka daga
    8:00 – 16:00

    Skiptiborð er opið
    9:00 – 12:00
    13:00 – 15:30

    © Húðlæknastöðin ehf. – Með notkun á vefnum samþykkir notandi notkunarskilmála hans – Notkunarskilmálar og yfirlýsing um persónuvernd