FRAXEL PRO®

Viltu jafnari og þéttari áferð á húðina ásamt því að yngja hana upp?
Þá er meðferð með FRAXEL PRO eitthvað sem þú ættir að skoða.

Meðhöndlun með FRAXEL PRO frá Candela er ein áhrifaríkasta meðferðin gegn hrukkum, línum, húðslitum og örum. FRAXEL PRO vinnur einnig á litabreytingum í húð og jafnar áferð húðarinnar.

FRAXEL PRO felur í sér meðferð með tveimur ólíkum bylgjulengdum til að ná til allra laga húðarinnar:

  1. FRAXEL 1940: Þessi laser skýtur geislum sem ná grunnt niður í húðina og orsaka þar með minniháttar skaða sem örva endurnýjun á húðinni, ásamt því að vinna mjög mikið á litabreytingum og opnum svitaholum. Hentar mjög vel ef sólsköðuð húð. 
  2. FRAXEL 1550: Þessir lasergeislar fara mun dýpra í húðina , búa til lítil sár í leðurhúðinni og örva þannig kollagen og elastín framleiðslu, styrkja húðina og þétta. Þessir lasergeislar yngja því upp húðina en vinna einnig mjög vel á örum, t.d. eins og örum eftir bólur (acne) eða sliti eftir barnsburð (striae).

Það er einstaklingsbundið hve mörg meðferðarskipti þarf og fer meðal annars eftir því hve sólsköðuð húðin er eða hversu mikill slappleikinn er. Oft næst mjög fallegur árangur eftir einungis eitt skipti en ekki er óvanalegt að það þurfi 3 meðferðir af dýpri lasergeislanum til að ná tilætluðum árangri, þ.e.a.s. uppbyggingu almennt á þéttleika húðarinnar, auknum ljóma og minni línum og hrukkum. Þá eru það oftast 4-6 vikur sem líða á milli meðferða. Ef mikið af örum eru til staðar þá getur þurft 6 meðferðir með dýpri lasergeislanum og full áhrif koma ekki fyrr en 3-6 mánuðum eftir síðustu meðferðina. 

Það sama má segja um lasergeislann sem fer grynnra í húðina (1940nm), það er einstaklingsbundið hversu margar meðferðir þarf. Ef húðin er mjög sólsköðuð og/eða með mikið af brúnum blettum þá getur þurft nokkur skipti.

Við mælum með viðhaldsmeðferð x1-2 á ári eftir uppbygginguna.

Hentar þessi meðferð með einhverjum öðrum meðferðum?

Þessi meðferð hentar t.d. mjög vel með rakameðferðinni (skin booster) Profhilo, sérstaklega ef húðin er þurr og mikill slappleiki til staðar. Einnig hentar hún mjög vel með æðalaser ef það er rósroði eða háræðaslit til staðar. Þá mælum við með að setja saman æðalaser og djúpa laserinn (FRAXEL 1550 ).

Þessi samsetta meðferð með FRAXEL 1550 og æðalasernum hentar einstaklega vel fyrir þroskaða húð þar sem háræðaslit, roði og ójafn húðlitur er til staðar og slappleiki í húðinni ásamt hrukkum og línum. Meðferðin jafnar húðlitinn, áferðina og eykur þéttleika og ljóma hennar. Húðin einfaldlega yngist upp um mörg ár.

Fyrir og eftir myndir

Hér sést árangurinn af samsettri meðferð með FRAXEL PRO (bæði FRAXEL 1940 og FRAXEL 1550 ) eftir aðeins eitt skipti.

Hér er einnig frábær árangur af samsettri meðferð með FRAXEL PRO (bæði FRAXEL 1940 og FRAXEL 1550) eftir aðeins eitt skipti.

Hér sést svo munurinn eftir eitt skipti af samsettri meðferð með æðalasernum Nordlys (IPL) og FRAXEL 1550.

Önnur mynd sem sýnir árangurinn eftir samsetta meðferð með Nordlys æðalasernum og FRAXEL 1550.

Fyrir og eftir mynd samsett meðferð með æðalasernum IPL og FRAXEL 1550.

Hafðu samband

Hægt er að bóka tíma hjá lækni
frá kl. 9:00 – 12:00 og 13:00 – 15:30
Sími 520 4444

Ljósameðferð
Sími 520 4408

Sendu okkur tölvupóst
timabokun@hls.is

 

Spjallaður við okkur á
Facebook Messenger

    Húðlæknastöðin

    Smáratorg 1,
    201 Kópavogur,
    Iceland

    Opið virka daga
    8:00 – 16:00

    Skiptiborð er opið
    9:00 – 12:00
    13:00 – 15:30

    © Húðlæknastöðin ehf. – Með notkun á vefnum samþykkir notandi notkunarskilmála hans – Notkunarskilmálar og yfirlýsing um persónuvernd