3xGF Recovery Serum
31.990 kr.
3xGF Recovery Serum er sérþróað til notkunar eftir húðmeðferðir og lýtaaðgerðir, en serumið hjálpar til við að róa húðina og byggja hana upp að nýju. Töluverð óþægindi fylgja almennt slíkum meðferðum, og 3xGF Recovery Serum linar bólgur, minnkar roða og ertingu í húð. Þetta byltingarkennda serum lágmarkar tímann sem það tekur húðina að jafna sig eftir meðferðir sem raska ysta varnarlagi húðarinnar. 3xGF Recovery Serum hjálpar einnig til við að viðhalda árangri meðferðarinnar, en serumið vinnur á öllum helstu öldrunarmerkjum eins og hrukkum og fínum línum. Áframhaldandi notkun stuðlar því að heilbrigðari og fallegri húð.
Serumið inniheldur þrjá vaxtarþætti, EGF, KGF og IL-1a, sem framleiddir eru í byggi með aðferðum plöntulíftækni. Þessir öflugu og virku vaxtarþættir hjálpa til við að styrkja varnarhlutverk húðarinnar, örva endurnýjun hennar og náttúrulega framleiðslu á kollageni og elastíni. Serumið skilur því við húðina sjáanlega stinna og endurnærða.