Upplýsingar um talgreini (Skríba)
Upplýsingar um notkun talgreinis í læknaviðtölum
Hvað er talgreinir (Skríba)?
Húðlæknastöðin notar talgreini til að aðstoða húðsjúkdómalækna við skráningu sjúkraskráa. Markmið lausnarinnar er að einfalda skráningu, auka nákvæmni og gefa læknum meiri tíma til samskipta og meðferðar.
Talgreinirinn aðstoðar við að útbúa drög að samantekt úr læknaviðtalinu en húðsjúkdómalæknir fer ávallt yfir upplýsingarnar áður en þær eru vistaðar í sjúkraskrá.
Hvernig virkar kerfið?
Talgreinirinn vinnur úr samtali sem á sér stað í læknaviðtali og útbýr drög að samantekt. Húðsjúkdómalæknir yfirfer alltaf efnið og staðfestir það áður en upplýsingar eru skráðar í sjúkraskrá.
Upplýsingar eru aldrei færðar í sjúkraskrá án yfirferðar og staðfestingar húðsjúkdómalæknis.
Hvaða upplýsingar eru unnar?
Kerfið vinnur úr upplýsingum sem koma fram í læknaviðtalinu, þar á meðal:
- Hljóðupptöku af viðtalinu
- Afriti af samtalinu
- Samantekt úr viðtalinu
- Persónu- og heilsufarsupplýsingum sem nauðsynlegar eru vegna greiningar og meðferðar
- Dulkóðaðri kennitölu
Tilgangur vinnslunnar
Notkun talgreinis hefur það að markmiði að:
-
Bæta gæði sjúkraskráningar
-
Stytta þann tíma sem fer í skráningu
-
Gefa húðsjúkdómalæknum meira svigrúm til að sinna skjólstæðingum
Öryggi persónuupplýsinga
Öryggi persónuupplýsinga er í fyrirrúmi.
Gögn eru dulkóðuð og vistuð á öruggum netþjónum sem uppfylla viðurkenndar kröfur um upplýsingaöryggi og persónuvernd, þar á meðal ISO/IEC 27001 og GDPR. Gögn eru vistuð í Skríbunni á netþjónum Careflux sem reknir eru af Microsoft Azure í Svíþjóð.
Persónuupplýsingar eru varðveittar í allt að 12 mánuði.
Hvernig eru gögnin notuð?
Hljóðupptökur, afrit og samantektir eru eingöngu notuð til að vinna úr læknaviðtalinu og fínstilla afmarkaða talgreiningarlausn sem rekin er innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).
Gögn eru ekki notuð til að þjálfa almenn gervigreindarlíkön eða grunnlíkön þjónustuaðila eða annarra þriðju aðila.
Engin sjálfvirk ákvörðunartaka fer fram sem hluti af vinnslunni.
Persónuvernd og réttindi
Húðlæknastöðin leggur ríka áherslu á örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga í samræmi við gildandi persónuverndarlög.
Persónuupplýsingar eru unnar í samræmi við lög um persónuvernd nr. 90/2018, lög um sjúkraskrár nr. 55/2009 og aðrar viðeigandi reglur um meðferð heilbrigðisupplýsinga.
Þú átt rétt á að fá upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga þinna og, eftir því sem við á samkvæmt lögum, óska eftir aðgangi að þeim, leiðréttingu eða takmörkun vinnslu.
Hafðu samband
Ef þú hefur spurningar um notkun talgreinis eða vinnslu persónuupplýsinga er þér velkomið að hafa samband við Húðlæknastöðina.