![Gjafabréf FRAXEL PRO - Andlit](https://cdn.shopify.com/s/files/1/0270/7003/8100/files/Group823_8b2026cc-65ae-4c23-bc06-e2fd21488314.png?v=1716565361)
Gjafabréf FRAXEL PRO - Andlit
149.900 kr.
Gjafabréf fyrir 1 skipti í Fraxel Pro meðferð á andlit
Meðhöndlun með FRAXEL PRO frá Candela er ein áhrifaríkasta lasermeðferðin gegn hrukkum, línum, húðslitum og örum. FRAXEL PRO vinnur einnig á litabreytingum í húð og jafnar áferð húðarinnar.
FRAXEL PRO felur í sér meðferð með tveimur ólíkum bylgjulengdum til að ná til allra laga húðarinnar:
- FRAXEL 1940: Þessi laser skýtur geislum sem ná grunnt niður í húðina og orsaka þar með minniháttar skaða sem örva endurnýjun á húðinni, ásamt því að vinna mjög mikið á litabreytingum og opnum svitaholum. Hentar mjög vel ef sólsköðuð húð.
- FRAXEL 1550: Þessir lasergeislar fara mun dýpra í húðina , búa til lítil sár í leðurhúðinni og örva þannig kollagen og elastín framleiðslu, styrkja húðina og þétta. Þessir lasergeislar yngja því upp húðina en vinna einnig mjög vel á örum, t.d. eins og örum eftir bólur (acne) eða sliti eftir barnsburð (striae).
Nánari upplýsingar:
https://hudlaeknastodin.is/fraxelpro/
Húðlæknastöðin áskilur sér rétt til að breyta meðferðarframboði og verði á gildistímanum og gildir því gjafabréfið sem inneign að þeim tíma liðnum í 1 ár frá útgáfudegi.