Biojuve sett
47.900 kr.
Við kynnum með stolti nýtt vörumerki á Húðlæknastöðinni. BIOJUVE eru margverðlaunaðar húðvörur sem vinna að því að koma jafnvægi á bakteríuflóru húðarinnar. Þær eru vísindalega sannaðar og voru í um 10 ár í þróun áður en þær komu á markað.
Hvernig á að nota BIOJUVE?
Meðferðin felst í einfaldri húðrútínu tvisvar á dag, kvölds og morgna.
Á morgnana: Sérstakt Biojuve hreinsikrem borið á húðina. Næst er Biome Support Complex sett yfir. Gott er að setja rakakrem og sólarvörn í lokinn.
Á kvöldin: Fyrst er sérstakt hreinsikrem borið á húðina. Svo er sérstakt Biojuve serum (Living Biome Essential Serum) sett í höndina og virkjað með Biojuve vökva sem "kveikir" á lifandi örverum áður en þessi efni eru borin á húðina.
Fyrir hverja hentar BIOJUVE?
BIOJUVE er tilvalið fyrir alla sem vilja koma jafnvægi á bakteríuflóru húðarinnar, vilja einfalda húðrútínu og sækjast eftir heilbrigðri húð. Þær vinna á húðvandamálum eins og roða, þurrki og öldrun húðarinnar. BIOJUVE hentar viðkvæmri húð td. fyrir þá sem eru með eksem, rósroða eða litabreytingar. Einnig hefur verið vísindalega sannað að vörurnar bæta áferð og húðtón, ásamt því að minnka svitaholur og fínar línur í húðinni.