babyGLOW™
babyGLOW™ er frábær meðferð fyrir þá sem vilja auka ljóma (e. glass skin), raka og mýkt húðarinnar
Hvernig virkar meðferðin?
Teosyal Redensity 1 er sprautað í húðina á vandlega staðsettum svæðum. Blandan inniheldur hýalúronsýru, amínósýrur, andoxunarefni, vítamín og steinefnum sem stuðla að fallegum útlínum. Ávinningur af babyGLOW™ sést oft strax eftir meðferð vegna aukins raka og ljóma í húðinni en fullur árangur kemur yfirleitt í ljós á næstu vikum þegar húðin hefur fengið tíma til að endurnýjast.
babyGLOW™
- Eykur rakastig húðarinnar.
- Mýkir skugga og þreytumerki.
- Bætir náttúrulegar andlitsútlínur.
- Gefur húðinni samstundis meiri ljóma.
Ólíkt hefðbundnum fylliefnum er markmið meðferðarinnar ekki að auka rúmmál í andliti heldur að bæta gæði húðarinnar, auka raka og stuðla að betri endurkasti ljóss frá húðinni. Niðurstaðan er náttúrulegur og heilbrigður ljómi.
Fyrir hvern er babyGLOW™?
babyGLOW™ hentar einstaklingum sem vilja:
- Fyllri og rakameiri húð.
- Aukinn ljóma og ferskara yfirbragð.
- Bætt húðgæði án verulegra breytinga á andliti.
- Meðferð með lágmarks batatíma.
Meðferðin hentar bæði konum og körlum og er vinsæl sem rakaboostermeðferð fyrir sérstök tilefni eða sem hluti af reglulegri húðumhirðu.
Ávinningur meðferðarinnar
Almennt má búast við að áhrifin vari í:
- 3 til 6 mánuði hjá flestum einstaklingum.
- Bestur árangur næst eftir 2 til 3 meðferðir með 4-6 vikna millibili.
- Til að viðhalda ljóma, raka og bættum húðgæðum er mælt með viðhaldsmeðferð á 6 mánaða fresti.
Hversu lengi áhrifin endast fer meðal annars eftir:
- Aldri og ástandi húðarinnar.
- Lífsstíl, svo sem sólbaði, reykingum og streitu.
- Húðumhirðu og notkun sólarvarna.
- Efnaskiptahraða einstaklingsins.
Hvað gerist eftir meðferðina?
- Eftir meðferðina sjást gjarnan litlir hnúðar þar sem efninu var sprautað í húðina. Yfirleitt hverfa þeir innan 4-6 klst en geta varað í allt að 24 klst.
- Hægt er að gera ráð fyrir því að snúa aftur til vinnu daginn eftir meðhöndlunina.
- Þú getur fengið mar eftir stungurnar sem þá varir yfirleitt bara nokkra daga.
- Ekki nota farða í eina klst. eftir meðhöndlun.
- Ekki stunda líkamsrækt eða líkamlegt erfiði í sólarhring .
- Ekki gangast undir aðrar meðferðir á meðferðarsvæðinu í 2 sólarhringa eftir meðferðina.