Fara á efnissvæði

Hvaða vörur og meðferðir henta þér?

Með því að svara nokkrum spurningum getum við leiðbeint þér með mögulegar húðmeðferðir og viðeigandi vörur sem henta þinni húðgerð

Á hvaða aldri ert þú?

Hvaða húðgerð ertu með?

Hvaða húðvandamál ertu með/ hvað viltu leggja áherslu á að meðhöndla?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið einn valmöguleika.

Hefur þú áhuga á að hafa virk innihaldsefni í húðrútínunni?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið fleiri en einn valmöguleika.

...eitt að lokum

Með því að skrá þig á póstlista Húðlæknastöðvarinnar færð þú sérkjör auk upplýsinga um nýjar meðferðir, húðvörur, tilboð og almenna fræðslu.

Augnablik...

Háreyðing

Háreyðing með laser er frábær kostur fyrir þá sem vilja áhrifaríka lausn til að fjarlægja líkamshár.

Istock 1370102751

Það er eðlilegt að vera með hárvöxt á líkamanum. Hversu mikill hann er fer eftir þáttum eins og erfðum, kyni, hormónaójafnvægi, aldri og fleiru. Ef hárvöxturinn er á svæðum þar sem hans er ekki óskað fer fólk oftast í að fjarlægja hárin. Margir plokka, raka eða vaxa, sem getur oft ert húðina og aukið verulega inngróin hár ásamt því að árangurinn er afar skammvinnur.  Einnig geta þessar aðferðir valdið því að viðkomandi fær á tilfinninguna að hárvöxturinn aukist og að hárin verði grófari. 

Hvað er háreyðing með laser?

Í einföldu máli er lasermeðferð meðferð með ljósgeisla af ólíkum bylgjulengdum, en bylgjulengdin ræður því hve langt ljósið nær niður í húðina. I háreyðingalaser beinist geislinn sérstaklega gegn dökka litarefninu í hárinu, hitar það alveg niður í hárrótina og eyðileggur hana þannig að hár geta ekki vaxið þaðan aftur.

Til þess að þetta takist þarf laserinn að vera af hæsta mögulega gæðaflokki og starfsfólk sem vinnur á honum með viðeigandi þekkingu. Margir laserar á markaðnum í dag standast ekki þessar kröfur. Því er mikilvægt að vanda valið á meðferðarstöð svo viðkomandi fái sem bestan mögulegan árangur af meðferðinni.

Fyrir hverja er háreyðingarlaser?

Meðferðin hentar öllum þeim sem vilja losna við líkamshár. Hægt er að meðhöndla allar húðgerðir, öll kyn, breitt aldursbil og flest öll svæði líkamans t.d. Andlit, háls,nasir, bringu, handarkrika, axlir, handleggi, maga, fótleggi, tær, kynfærasvæði, rasskinnar, og bak.

Hentar mjög vel þeim sem eru gjarnir á að fá inngróin hár eða endurteknar hársekkjabólgur eftir rakstur eða vax. Einnig þeim sem eru með viðkvæma húð , eksem eða aðra húðsjúkdóma og þola illa áreyti frá rakvél eða heitum vaxstrimlum. Laser er þá kjörin meðferð þar sem lasergeislinn beinist að hverjum hársekk fyrir sig án þess að hafa neikvæð áhrif á húðina í kring.

Það er mikilvægt að hafa í huga að mjög ljós hár, hvít eða grá, svara ekki meðferðinni þar sem það verður að vera litarefni til staðar fyrir lasergeislan til að nema og eyðileggja hársekkinn. Því grófari og dekkri hár, því betri og skjótari er árangurinn.

Hverjir eru kostir háreyðingar með laser?

  • Langtíma árangur. Eftir hvert skipti líður alltaf lengri tími þar til ný hár vaxa og þau sem koma eru bæði fíngerðari og vöxturinn gisnari en áður. Að lokinni meðferð upplifa lang flestir að hárin séu hætt að koma. Í sumum tilfellum geta komið stöku hár þrátt fyrir að meðferð sé lokið og stundum getur komið vöxtur eftir einhverja mánuði eða ár. Ýmislegt getur valdið því eins og t.d hormónar. Hárin eru þá oftast mun fíngerðari og vöxturinn gisnari en hann var áður.

  • Nákvæm og áhættulítil meðferð. Þar sem lasergeislinn beinist að litarefni í hverjum hársekk fyrir sig hefur hann ekki neikvæð áhrif á húðina í kring. Laser veldur ekki inngrónum hárum, hársekkjabólgu, þurrki eða öðrum húðvanda eins og rakstur og vaxmeðferðir geta gert.

  • Hægt er að meðhöndla allar húðgerðir og flest öll svæði.

  • Hver meðferð tekur stuttan tíma, allt frá nokkrum sekúntum eins og við meðhöndlun á nasahárum eða efri vör og upp í 30 mín fyrir stór svæði eins og bakið eða alla leggina.

  • Meðferðin er sársaukalítil og hægt að fara beint til vinnu að henni lokinni.

Hvað ber að hafa í huga fyrir meðferðina?

  • Raka þarf svæðið sem á að meðhöndla vandlega sama dag eða daginn fyrir meðferð. Það er í lagi raka á milli meðferða en ekki skal fara í vax.
  • Ekki má nota brúnkukrem að minnsta kosti 2 vikum fyrir meðferð.

  • Húðin má ekki vera sólbrún þegar meðferðin fer fram og ekki fara í sól 1 til 2 vikum eftir meðferð.
  • Ekki er hægt að meðhöndla svæði sem eru húðflúruð.

  • Ekki er æskilegt að gera meðferðina á þunguðum konum.

  • Sum krem og lyf geta gert húðina viðkæmari svo taktu alltaf fram við meðferðaraðila ef þú ert á slíkri meðferð.

Hvernig fer meðferðin fram?

Viðkomandi fær sérstök gleraugu til að vernda augun fyrir lasergeislanum. Svæðið sem á að meðhöndla er kælt með kælipokum. Síðan er meðferðarhausinn lagður á húðina og skoti hleypt af. Flestir upplifa skotið eins og skammvinna hitatilfinningu í húðinni. Þegar skotinu er hleypt af má sjá ljósglampa líkt og þegar teknar eru myndir með flassi. Fjöldi skota fer eftir stærð svæðis sem verið er að meðhöndla. Meðferðin er sársaukalítil, það kemur smá stingur í hverju skoti en laserinn inniheldur einnig innbyggðan kælibúnað sem hjálpar til við að kæla og vernda húðina á meðan á meðferð stendur og minnkar það líka óþægindin.

Hvað þarf að koma mörg skipti?

Háreyðingarmeðferð krefst endurtekninga til að ná tilætluðum árangri. Hár gengur í gegnum mismunandi vaxtarskeið og meðferðin virkar best þegar hárin eru í vaxtarfasa. Á hverjum tíma er um 20% háranna í þeim fasa. Þess vegna þarf að meðhöndla hvert svæði í nokkur skipti. Í andliti líða bara nokkrar vikur á milli vaxtarfasa á meðan það geta liðið nokkrir mánuðir á milli á fótleggjum. Þess vegna er æskilegt að láta líða að minnsta kosti 2-3 mánuði á milli meðferða til að ná sem bestum árangri í hvert skipti.

Það er einstaklingsbundið hve mörg skipti þarf og fer það eftir hárvexti viðkomandi og líkamssvæði sem verið er að meðhöndla. Því er ómögulegt að segja til um hve mörg skipti hver og einn þarf fyrr en aðeins er liðið er á meðferðartímann.

. 

Við hverju má búast eftir meðferðina?

Strax efir meðferðina kemur smávegis roði fram, líkt og við vægan sólbruna. Einstaka sinnum getur vottað fyrir bjúg á meðferðarsvæðinu. Þessi einkenni ganga venjulega yfir á 30 mínútum til 24 klst. Ef sviði er í húðinni má bera kælipoka við húðina eða bera kalt gel, t.d. Aloe Vera, á húðina.

Litabreytingar geta komið fram á svæðinu, oftast er það tímabundið en í einstökum tilvikum getur það verið varanlegt. Þetta er þó mjög sjaldgæft. Fólk með dekkri húðtýpu er í aðeins aukinni áhættu og eins ef maður fer í sól dagana eftir meðferðina.

Ekki er að vænta árangurs strax eftir fyrstu meðferðina, heldur líða yfirleitt 1-2 vikur þar til fer að draga úr hárvexti. Í byrjun meðferðar má búast við því að hárvöxtur aukist örlítið aftur rétt fyrir næstu meðferð. Þetta má ekki túlka sem svo að meðferðin hafi misheppnast, heldur eru hár sem verið hafa í hvíldarfasa að flytjast í vaxtarfasa og verða því sýnilegri. Eftir því sem lengra líður á meðferðar tímabilið því færri og fíngerðari hár koma á milli skipta þar til þau hætta aðveg að koma og þá hægt að segja að meðferð sé lokið.

Það er mikilvægt að vernda meðferðarsvæðið frá sólinni 1-2 vikur fyrir og eftir meðferð. Einnig ber að forðast bað, heita potta, sund eða líkamsrækt þar sem búast má við að svitna mikið 24 klst. Hægt er að mæta beint til vinnu eða skóla að meðferð lokinni.

Prentvæn útgáfa

Háreyðing

Andlit
23.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
60.945 kr.
Haka, efri vör, hnakki (hvert svæði 15.900 kr)
15.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
40.545 kr.
Holhendur
20.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
53.295 kr.
Brjóst
15.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
40.545 kr.
Brjóst og bringa
23.900 kr.
3 meðferðir með 15% afslætti
60.945 kr.
Framhandleggir
23.900 kr.
3 meðferðir með 15% afslætti
60.945 kr.
Fram- og upphandleggur
41.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
106.845 kr.
Axlir
27.900 kr.
3 meðferðir með 15% afslætti
71.145 kr.
Allt bakið
41.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
106.845 kr.
Bikiní svæði
22.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
58.395 kr.
Brasilískt svæði
27.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
71.145 kr.
Bikiní svæði + læri innanv.
26.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
68.595 kr.
Sportrönd
15.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
40.545 kr.
Kviður/Magi
26.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
68.595 kr.
Leggir
27.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
71.145 kr.
Læri
41.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
0 kr.
aftaná læri
21.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
55.845 kr.
innanvert læri
20.900 kr.
3 meðferðir með 15% afsl
53.295 kr.