Fraxel Pro®
Viltu þéttari og jafnari áferð ásamt því að yngja upp og viðhalda heilbrigði húðarinnar? Þá er meðferð með FRAXEL PRO eitthvað sem þú ættir að skoða!
Okkar allra vinsælasta meðferð hér á Húðlæknastöðinni og ekki að ástæðulausu. Þessi laser er það sem er kallað "non-ablative" kollagen laser sem þýðir að það verður ekki rof á yfirborði húðarinnar við meðhöndlun. Batatíminn er einungis 2-3 dagar og er Fraxel því oft kallaður helgarlaserinn hér innanhúss. Fraxel Pró er samsett meðferð með tveimur ólíkum laserum. Þú færð því tvær ólíkar meðferðir í sama pakka þar sem unnið er á öllum lögum húðarinnar, bæði djúpt í leðurhúðinni og grunnt í yfirhúðinni. Meðferðin er alltaf einstaklingsbundin og við metum hvaða samsetning hentar best hverju sinni.
Tvær ólíkar bylgjulengdir
Fraxel Pró laserinn býður upp á tvær ólíkar bylgjulengdir: 1940mm og 1550mm. Fraxel 1940 skýtur geislum sem ná grunnt í húðna og örva endurnýjun á yfirhúðinni ásamt því að vinna mjög vel á litabreytingum, áferð húðarinnar og opnum svitaholum. Fraxel 1550 fer mun dýpra í húðina, býr til lítil sár og örvar þannig kollagen og elastín framleiðslu, styrkir húðina og þéttir. Þessir geislar vinna þannig mjög vel á örum eftir bólur (acne) eða sliti eftir barnsburð (striae) og svo að sjálfsögðu á hrukkum og fínum línum.
Ávinningur af Fraxel Pró
- Þéttir og yngir upp húðina
- Vinnur á fínum línum og hrukkum
- Eflir kollagen og elastín framleiðslu
- Vinnur á litabreytingum
- Veitir húðinni ljóma
- Fyrirbyggir öldrun húðarinnar
- Stuttur batatími
Með eða án rakameðferðar?
Hægt er að velja á milli þess að fá Fraxel Pró með eða án rakameðferðar. Við mælum sterklega með því að velja rakameðferðina með þar sem báðar þessar bylgjulengdir sækja í vatn og vinna best ef það er góður raki í húðinni. Ef húðin er þurr eða rakalítil þá getur árangurinn af lasermeðferðinni verið minni.
Til að hámarka árangur af Fraxel Pró mælum við með því að koma í rakameðferð (e.skin booster) 2-4 vikum áður. Þá er hreinni hyaluronic sýru sprautað grunnt í húðina. Það er einstaklingsbundið hve margar meðferðir þarf til að ná þeim árangri sem óskað er eftir og við metum það með þér í byrjun meðferðarinnar. Ekki er óalgengt að taka tvær til þrjár meðferðir í upphafi á 8 vikna fresti og svo eina meðferð á ári til að viðhalda árangrinum og hægja á öldrun húðarinnar.
Við bjóðum 15% afslátt af annari meðferð innan sex mánaða frá fyrstu meðferð og 20% afslátt af þriðju meðferð innan sex mánaða frá annari meðferð.
Fyrir og eftir myndir
Ráð fyrir meðferð
- Við deyfum húðina með deyfikremi klukkutíma fyrir meðferðina.
- Forðast sól, þ.m.t. ljósabekki, 2 vikum fyrir meðferð.
- Ekki má vera sólbrún/n eða með brúnkukrem þegar meðferð fer fram.
- Nota skal sólarvörn SPF 50 fyrir meðferð.
- Vinsamlegast afbókaðu ef þú ert með frunsu.
- Ef þú ert gjörn á að fá áblástur/frunsu þá ráðleggjum við að taka inn Valacyclovir 500 mg 4 töflur í einu fyrir meðferð og aftur sama skammt 12 klst seinna.
- Þungaðar konur eru ekki meðhöndlaðar.
Í kjölfar meðferðar
- Þú getur búist við hitatilfinningu í húðinni í 6-8 klst eftir meðferðina en það er ekki þörf á verkjastillingu.
- Dagur 0-2: roði, talsverð bólga, sérstaklega undir augum.
- Dagur 2-5: talsverð flögnun, við mælum með að sleppa farða.
- Dagur 5-7: húðin er talsvert búin að jafna sig og það er í lagi að bera farða á húðina.
Ráð eftir meðferð
- Ekki fara í heita potta eða sund fyrr en húðin hefur jafnað sig að fullu. Það er í lagi að fara í sturtu daginn eftir.
- Ekki er mælt með að fara í líkamstækt í 1-2 daga eftir meðferð.
- Forðast skal sólina (þ.m.t. ljósabekki) í 2 vikur á eftir.
- Nota skal sólarvörn í a.m.k. 4 vikur eftir meðferðina, minnst SPF 50. Gott að byrja 1-2 dögum eftir meðferð.
- Litabreytingar dökkna tímabundið eftir meðferðina og dofna á 1-2 vikum.
Húðumhirða
- Við ráðleggjum að nota feit krem fyrstu dagana t.d. Aquaphor frá Eucerin, Cicaplast frá La Roche Posay eða Epidermal Repair frá SkinCeuticals.
- Einnig mælum við með að nota 3xGF Recovery Serumið frá Bioeffect til að styðja við enduruppbyggingu húðarinnar, flýta fyrir bata og hámarka árangur meðferðar. Serumið er borið 2x á dag, á hreina húð, áður en krem er sett yfir.
- Einnig er gott að nota gelmaskann frá Bioeffect til að kæla niður húðina og gefa raka.
- Um það bil 7-12 daga á eftir er í lagi að byrja RÓLEGA á fyrri húðrútínu en hafa í huga að nota AHA sýrur og Retinól þriðja hvern dag til að byrja með.
- Það er sérstaklega gott að byrja strax að nota góð serum t.d. CE Ferulic og Phyto Corrective Serum