Fotona Smooth Eye®
Viltu minnka línurnar í kringum augun? Þá er Fotona Smooth Eye® meðferðin fyrir þig
Fotona Smooth Eye® lasermeðferðin er sérhönnuð til að meðhöndla húðina kringum augun. Hún dregur úr fínum línum og hrukkum ásamt því að stinna og þétta húðina á bæði efri og neðri augnlokum.
Hvernig virkar meðferðin?
Laserinn örvar nýkollagenmyndun í húðinni ásamt þvi að það strekkist á þeim kollagenþráðum sem fyrir eru. Fotona Smoothmode ™ er einkaleyfisvarin lasermeðferð þar sem notaður er háorkulaser á öruggan máta sem leiðir til frábærs árangurs án teljandi aukaverkana.
Ekki þarf að taka sér frí frá vinnu vegna meðferðarinnar. Sumir finna fyrir vægum roða og bólgu, eins og við sólbruna, í 2-3 daga á eftir. Einnig getur húðin aðeins flagnað nokkrum dögum eftir meðferð.
Sjáanlegur munur getur komið fram á nokkrum dögum vegna strekkingar á þeim kollagenþráðum sem fyrir eru. Mestur munur sést u.þ.b. 6-8 vikum eftir meðferð. Ráðlagt er meðhöndla þrisvar sinnum á ca 6 vikna fresti til að fá fram sem bestan árangur. Bæting á húðinni getur komið fram í allt að 8-9 mánuði eftir síðustu meðferð vegna nýmyndunar á bæði kollageni og elastíni.