Fara á efnissvæði

Hvaða vörur og meðferðir henta þér?

Með því að svara nokkrum spurningum getum við leiðbeint þér með mögulegar húðmeðferðir og viðeigandi vörur sem henta þinni húðgerð

Á hvaða aldri ert þú?

Hvaða húðgerð ertu með?

Hvaða húðvandamál ertu með/ hvað viltu leggja áherslu á að meðhöndla?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið einn valmöguleika.

Hefur þú áhuga á að hafa virk innihaldsefni í húðrútínunni?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið fleiri en einn valmöguleika.

...eitt að lokum

Með því að skrá þig á póstlista Húðlæknastöðvarinnar færð þú sérkjör auk upplýsinga um nýjar meðferðir, húðvörur, tilboð og almenna fræðslu.

Augnablik...

Fotona 4D®

Viltu andlitslyftingu án skurðaðgerðar? Þá er Fotona4D® eitthvað sem þú ættir að skoða.

Fotona4D® er einstök lasermeðferð sem meðhöndlar öll lög húðarinnar. Gefur stinnari og unglegri húð, þéttari undirhúð og fallegan ljóma.

Fotona4D® er fjögurra þrepa lasermeðferð sem nær til allra laga húðarinnar. Hvert þrep byggir upp húðina og samverkandi áhrif þeirra leiða til dýpri þéttingar og stinningar húðarinnar. Húðin verður unglegri fyrir vikið og dregur meðal annars úr dýpt nasolabial línunnar, sem liggur milli nefs og munnvika. Að auki getur meðhöndlunin dregið úr litabreytingum og æðasliti, og þannig jafnað húðtóninn.

Húðin er fljót að jafna sig. Strax eftir meðhöndlun getur borið á roða og vægri bólgu sem hverfur á 1-2 dögum.

Fyrir hvern er Fotona4D®?

Meðferðin hentar þeim sem eru að leita að andlitslyftingu án aðgerðar og fallegum ljóma. Fotona 4D hentar öllum óháð húðlit og húðgerð.  

Fjögur þrep Fotona4D®

SmoothLiftin™ 

Í fyrsta þrepi eru innanverðar kinnar meðhöndlaðar gegnum munn. Dýpstu lög húðarinnar eru meðhöndluð innan frá. Þetta leiðir til þess að kollagenþræðir dragast saman en um leið eru bandvefsfrumur húðarinnar örvaðar til frekari kollagenmyndunar. Þetta gefur sjáanleg áhrif strax vegna samdráttar kollagenþráðanna og frekari áhrif koma fram á 2-3 mán vegna aukinnar kollagenmyndunar.  

FRAC3® 

Í öðru þrepi er húðin meðhöndluð utan frá með stuttum laserpúlsum. Lögð er sérstök áhersla á dýpri línur og litabreytingar til að bæta áferð húðarinnar og jafna húðtóninn. 

PIANO® 

Í þriðja þrepi meðferðarinnar er unnið með lengri laserpúlsa sem virka á millilög húðarinnar. Örva kollagen framleiðslu þar, þétta húðina og gera hana stinnari.  

SupErficial™ 

Að lokum er ysta lag húðarinnar meðhöndlað. Notað er létt laser-peel sem framkallar þéttari og ljómandi húð.  

Hvað gerir Fotona 4D fyrir þig?

  • Örvar kollagenframleiðslu húðarinnar 
  • Dregur úr litabreytingum í húðinni 
  • Stinnir og þéttir húðina 
  • Grynnkar á nasolabial línum (milli nefs og munnvika) 

Spurningar og svör um Fotona 4D

Hvenær koma áhrifin fram? 

Viss húðþétting á sér stað strax eftir meðhöndlun. Á næstu dögum verður áferð húðarinnar betri, fram kemur jafnari húðtónn og fallegur ljómi. Full áhrif koma fram eftir 2-3 mánuði.  

Hversu margar meðferðir eru ráðlagðar til að ná fram fullum árangri?

Mælt er með 3 meðferðum með u.þ.b. 4 vikna millibili. Til að viðhalda árangri er mælt með viðhaldsmeðferð árlega.  

Hvernig er líðanin eftir meðferð? 

Roði og bólga getur komið fram eftir meðferð. Einnig getur fólk fundið hitatilfinningu og eymsli á meðferðarsvæðinu í nokkra daga. Mögulega getur væg flögnun átt sér stað.  

Þarf að hafa eitthvað sérstakt í huga fyrir og eftir meðhöndlun? 

Mikilvægt er að forðast sól 2 vikum fyrir og 4 vikum eftir meðferð þar sem h´uðin er næmari fyrir sólinni eftir meðferðina. Ráðlagt er að nota sólarvörn spf 50 í mánuð á eftir. Einnig er ráðlagt að nota húðvörur sem gefa góðan raka eftir lasermeðferðir.  

Eru einhverjir sem mega ekki fara í þessa meðferð? 

Ekki er ráðlagt að fara í lasermeðferð á meðgöngu. Ekki er ráðlagt að fara sólbrúnn í lasermeðferð.

Prentvæn útgáfa

Fotona 4D®

Stök meðferð
149.900 kr.
3 meðferðir
299.900 kr.
Fotona LipLase® - stök meðferð
39.900 kr.
3 meðferðir
79.900 kr.
Fotona Smooth Eye® - stök meðferð
79.900 kr.
3 meðferðir
159.990 kr.
Fotona4D® og Smooth Eye® - stök meðferð
199.900 kr.
3 meðferðir
399.990 kr.
Fotona® línur í kringum munn - stök meðferð
69.900 kr.
3 meðferðir
139.900 kr.
Fotona® í kringum munn ásamt LipLase - stök meðferð
99.900 kr.
3 meðferðir
199.900 kr.
Fotona4D® andlit og háls - stök meðferð
179.900 kr.
3 meðferðir
359.990 kr.
Fotona4D® háls - stök meðferð
79.900 kr.
3 meðferðir
159.900 kr.
Fotona® djúpur erbium laser
249.900 kr.
Endurkoma innan 6 mán
149.900 kr.