Ávaxtasýrumeðferð gegn litabreytingum
SkinCeuticals Pigment Balancing Peel. Þessar ávaxtasýrur vinna á efsta húðlaginu og einblína á litabreytingar/sólarbletti í húð. Þær þétta húðina, jafna húðlit og auka ljóma ásamt því að vinna á fínum línum og hrukkum, opinni húð, bólum og fílapenslum.
Fyrir meðferð:
- Þessi meðferð hentar flestum húðgerðum og sérstaklega sólskaðaðri húð.
- Þungaðar konur eru ekki meðhöndlaðar.
- Meðferðin hentar ekki mjög viðkvæmri né ertri húð.
- Árangurinn felst í jafnari húðlit, auknum ljómi og sléttara yfirbragði. Minna áberandi svitaholum, jafnari fituframleiðslu, auknum raka og hreinni húð.
- Ein meðferð örvar starfsemi húðarinnar en bestur árangur næst með 4-6 skiptum, á 2-4 vikna fresti, eftir því hver húðgerðin er.
- Ef þú notar Retinol skaltu hætta notkun 7-10 dögum áður.
- Ekki mæta með nýrakaða eða vaxaða húð.
- Afbókaðu tímann ef þú ert með frunsu.
Eftir meðferð:
- Eftir meðferð getur verið roði í húðinni í nokkra daga og sólarblettir/litabreytingar verða dekkri til að byrja með. Pirringur og þurrkur getur gert vart við sig og einnig getur húðin byrjað að flagna. Í sumum tilfellum getur orðið bólga. Þessi einkenni minnka yfirleitt eftir því sem meðferðarskiptum fjölgar.
- Ekki er ráðlagt að nota farða í að minnsta kosti sólarhring eftir meðferð vegna þess hve húðin er opin, ert og viðkvæm.
- Ekki vera í sól eða fara í ljósabekki 2-4 vikur eftir meðferð þar sem húðin er ljósnæmari á meðan meðferð stendur.
- Gott er að gefa húðinni góðan raka dagana eftir meðferðina og mælum við með að nota daglega SkinCeuticals Phloretin C-vitamin serum og Discoloration serum til að hámarka árangur. Einnig fæst góður raki með B5 serum og/eða Phyto Corrective serum eða maska. Þessar vörur fást í vefverslun okkar og á Húðlæknastöðinni Smáratorgi.
- Ef mikil bólga, blöðrur eða sýkingamerki þá skaltu hringja í síma 520-4407 / 520-4412 / 520-4419 virka daga á milli 8-16 eða senda okkur póst á hudmedferdir@hls.is