Fara á efnissvæði

Hvaða vörur og meðferðir henta þér?

Með því að svara nokkrum spurningum getum við leiðbeint þér með mögulegar húðmeðferðir og viðeigandi vörur sem henta þinni húðgerð

Á hvaða aldri ert þú?

Hvaða húðgerð ertu með?

Hvaða húðvandamál ertu með/ hvað viltu leggja áherslu á að meðhöndla?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið einn valmöguleika.

Hefur þú áhuga á að hafa virk innihaldsefni í húðrútínunni?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið fleiri en einn valmöguleika.

...eitt að lokum

Með því að skrá þig á póstlista Húðlæknastöðvarinnar færð þú sérkjör auk upplýsinga um nýjar meðferðir, húðvörur, tilboð og almenna fræðslu.

Augnablik...

Aquagold

Aquagold meðferðin er hönnuð til að koma virkum efnum í húðina á áhrifaríkan og nánast sársaukalausan hátt til að stinna og stuðla að endurnýjun húðarinnar.

Hvernig virkar Aquagold meðferðin?

Aquagold tækið inniheldur 20 örfínar nálar sem eru húðaðar með 24 karata gulli en gullið veldur minni ertingu í húðinni og er ekki ofnæmisvaldandi eins og sumir málmar. Nálarnar eru aðeins 0,6 mm að lengd sem er fullkomin stærð til að ná niður í leðurhúðina (dermis). Örnálarnar sjálfar örva kollagen nýmyndun og með þeirra hjálp er hægt að koma virkum efnum á þann stað í húðina þar sem þau hafa hvað mest áhrif.  Meðferðartækið er viðurkennt af Bandaríska lyfjaeftirlitinu (FDA). 

8

Hvaða efni eru notuð í Aquagold meðferðinni?

Í Aquagold meðferð er notuð blanda af hýalúronsýru (skinbooster) og toxíni.  

Hýalúronsýra er efni sem viðheldur raka í húðinni og gefur húðinni fyllingu og ljóma. Hún gerir húðina stinnari og dregur úr fínum línum og hrukkum. Hýalúronsýra er stór sameind og á því erfitt með að komast í gegnum húðina með venjulegum kremum en virkar mjög vel þegar henni er stungið í leðurhúðina, eins og með venjulegum fylliefnum og Aquagold. 

Toxín í Aquagold meðferðinni eru blönduð á annan hátt en hefðbundin toxín meðferð og þar sem toxínið er sett grunnt í húðina hefur það engin áhrif á undirliggjandi vöðva. Toxín í húðinni slétta úr húðinni, draga saman svitaholur og minnka olíuframleiðslu og svitamyndun. Þau bæta þannig áferð húðarinnar og auka ljóma.

Hvað gerir Aquagold meðferðin fyrir húðina?

  • Eykur raka
  • Minnkar svitaholur
  • Minnkar olíumyndun
  • Eykur þéttleika
  • Bætir áferð húðarinnar
  • Mildar fínar línur og hrukkur
  • Minnkar svitamyndun
  • Minnkar roða t.d. vegna rósroða
  • Gefur ljóma og ferskara útlit

Aquagold meðferðina er hægt að nota á andlit, háls, bringu og handarbök.

Er meðferðin sáraukafull?

Meðferðin er sársaukalítil en auðvitað getur verið einstaklingsmunur. Sum meðferðarsvæði eru viðkvæmari, einkum þar sem húðin er þunn og þar sem mikið er um taugaenda t.d. á nefi og kringum munn.

9

Er Aquagold meðferðin örugg?

Já, svo sannarlega. Þar sem Aquagold lausnin er sett svo grunnt í húðina er möguleiki að meðhöndla svæði sem aðrar meðferðir eins og laser og medical peeling komast illa að eins og t.d. kringum munn og augu. Þær örsmáu holur sem myndast eftir nálarnar lokast hratt svo sýkingar eru mjög sjaldgæfar.

Hvenær sést árangurinn og hve lengi varir hann?

Áhrifin sjást strax eftir 3-7 daga en það getur tekið allt að 2 vikur að sjá fullan árangur. Fullur árangur varir um það bil í 3-4 mánuði en hver meðferð gefur langtímaárangur þar sem nýmyndun kollagens örvast og byggist upp að nýju. Ráðlagt er að endurtaka meðferðina á 3-4 mánaða fresti til að viðhalda hámarksárangri. 

Meðferðin er einnig vinsæl fyrir mikilvæga atburði þar sem óskað er eftir að húðin sé uppá sitt besta og ljómandi, eins og t.d. brúðkaup. Mælum þá með að plana meðhöndlunina 2-3 vikum áður. 

Ef húðin er þroskuð með talsvert af hrukkum og/eða skorti á fyllingu þarf líklega að sameina Aquagold meðferðin með fylliefnum, vöðvatoxínum eða laser meðferðum. 

Hve langan tíma tekur meðferðin?

Meðferðin tekur u.þ.b. 30 mín en fer eftir hversu stórt meðferðarsvæðið er sem á að meðhöndla.

Hvað gerist eftir meðferðina?

Meðferðarsvæðið verður rautt og örlítið aumt viðkomu. Þessi einkenni hverfa oftast á nokkrum klukkustundum en geta varað í 2-3 daga.  Marblettir eru mjög sjaldgæfir. 

Ráð eftir Aquagold meðhöndlun

  • Forðastu að þvo andlitið í 6 klukkustundir. Hreinsaðu svo húðina með mildum hreinsi.
  • Ekki nota förðunarvörur fyrstu 6 klukkustundirnar eftir meðferðina.
  • Forðastu virkar húðvörur eins og ávaxtasýrur og retinol í 5-7 daga eftir meðferðina sem og skrúbb og maska.
  • Notaðu mikið af góðum hlutlausum raka á húðina, t.d. hyalúranic sýru serum, í nokkra daga eftir meðferðina.
  • Forðastu sólina í a.m.k. 24 klukkustundir eftir meðferðina og notaðu sólarvörn með a.m.k. 30 SPF í amk nokkrar vikur eftir meðferð.
  • Forðastu líkamsrækt og gufuböð í 48 klst ef húðin er enn rauð og ert.

Ef þú ert að kljást við eftirfarandi vandamál er ekki ráðlagt að meðhöndla með Aquagold meðferðinni:

  • Þrymlabólur (acne vulgaris).
  • Sýking í andliti.
  • Bólgusjúkdómar í andliti eins og eksem, psoriasis, perioral dermatitits eða rósroða á bólgustigi.

Aquagold meðferðin er ekki framkvæmd á þunguðum konum eða konum með barn á brjósti.

Prentvæn útgáfa