Fara á efnissvæði

Hvaða vörur og meðferðir henta þér?

Með því að svara nokkrum spurningum getum við leiðbeint þér með mögulegar húðmeðferðir og viðeigandi vörur sem henta þinni húðgerð

Á hvaða aldri ert þú?

Hvaða húðgerð ertu með?

Hvaða húðvandamál ertu með/ hvað viltu leggja áherslu á að meðhöndla?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið einn valmöguleika.

Hefur þú áhuga á að hafa virk innihaldsefni í húðrútínunni?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið fleiri en einn valmöguleika.

...eitt að lokum

Með því að skrá þig á póstlista Húðlæknastöðvarinnar færð þú sérkjör auk upplýsinga um nýjar meðferðir, húðvörur, tilboð og almenna fræðslu.

Augnablik...

Kossageit (Impetigo)

Kossageit er bakteríusýking í húðinni sem er oftast orsökuð af grúppu A streptókokkum eða Staphylococcus aureus (⅓ tilfella). Þessar bakteríur geta lifað í hálsi og á húð án þess að gefa einkenni.

Hver eru einkenni kossageitar

Einkennin byrja oftast með litlum blöðrum í húðinni, sem rofna auðveldlega og við það myndast sár og svo gulleitt hrúður (hunangsgul sárskorpa). Útbrotin eru algengust í andliti og á höndum. Oft fylgir kláði og getur sýkingin breiðst út ef viðkomandi klórar sér en þegar sárin gróa án örmyndunar. Flestir eru án annarra einkenna eins og hita eða slappleika.

Hvernig smitast kossageit?

Kossageit smitast mjög auðveldlega og smit innan fjölskyldu, á leikskólum og í skólum er vel þekkt vandamál. Bakterían smitast við snertismit t.d. við að fingur snertir útbrotin og ber smitið áfram til annarra en smit getur einnig borist á milli með hlutum eins og leikföng og handklæðum.

Hvernig er hægt að greina kossageit?

Yfirleitt er greiningin ljós við skoðun en hægt er að taka ræktun frá útbrotunum og þannig fá úr skorið hvaða baktería veldur sýkingunni og upplýsingar um sýklalyfjanæmi. Oftast þarf ekki að meðhöndla með sýklalyfjum.

Almennar ráðleggingar við kossageit

  • Hreinsaðu sárið með vatni og sápu daglega og fjarlægðu hrúðrið varlega
  • Notaðu klórhexidínlausn á sárin (sótthreinsandi lausn)
  • Stundaðu tíðan handþvott til að koma í veg fyrir smit
  • Passaðu að sá sem er smitaður noti eigin handklæði og þvottapoka til að stöðva útbreiðslu smitsins
  • Klipptu neglurnar stutt

Hvernig er kossageit meðhöndluð?

Ef ekki dugar að uppræta sýkinguna með almennum ráðleggingum þarf stundum sýkladrepandi krem eins og Fucidin smyrsli sem er borið í sárið 2-3x á dag í 5 daga. Einstaka sinnum eru sýklalyf til inntöku notuð ef kossageitin er útbreidd.

Þessi texti er fenginn af www.hudvaktin.is

Prentvæn útgáfa

Hafðu samband

Hafir þú einkenni eða þjáist af þeim sjúkdómum sem fjallað er um hér er hægt að bóka tíma hjá lækni.

Tímapantanir

9:00–12:00 og 13:00–15:30

Skiptiborð

520 4444