Fara á efnissvæði

Hvaða vörur og meðferðir henta þér?

Með því að svara nokkrum spurningum getum við leiðbeint þér með mögulegar húðmeðferðir og viðeigandi vörur sem henta þinni húðgerð

Á hvaða aldri ert þú?

Hvaða húðgerð ertu með?

Hvaða húðvandamál ertu með/ hvað viltu leggja áherslu á að meðhöndla?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið einn valmöguleika.

Hefur þú áhuga á að hafa virk innihaldsefni í húðrútínunni?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið fleiri en einn valmöguleika.

...eitt að lokum

Með því að skrá þig á póstlista Húðlæknastöðvarinnar færð þú sérkjör auk upplýsinga um nýjar meðferðir, húðvörur, tilboð og almenna fræðslu.

Augnablik...

Brúðkaup

Undirbúðu húðina fyrir stóra daginn með meðferðum sem stuðla að heilbrigðu, fersku og geislandi útliti.

Husy0ttc

9-12 mánuðum fyrir brúðkaup

Gott að mæta 9-12 mánuðum fyrir stóra daginn til að ræða hvaða væntingar þú hefur, hvað er það sem þú sækist eftir og setja upp einstaklingsbundið meðferðarplan.

Þegar lengri tími er að brúðkaupsdegi er hægt að fara í meðferðir með lengri batatíma eða þær meðferðir sem taka lengri tíma að sýna ávinning t.d.

  • Fraxel Pro
    • Fyrir hámarksávinning af Fraxel Pro meðferðinni er mælt með því að taka tvær til þrjár meðferðir í upphafi á 8 vikna fresti og svo eina meðferð á ári til að viðhalda árangrinum og hægja á öldrun húðarinnar 
  • Húðþétting með Ultraformer
    • Aukin kollagenframleiðsla hefst strax eftir meðferðina en fullur árangur næst 3-5 mánuðum eftir meðferð
    • Hefðbundin húðþétting ásamt ljóma og lyftingu

Aðrar meðferðir sem við mælum með 9-12 mánuðum fyrir brúðkaup: 

  • Æðalaser við roða, æðaslitum og litaflekkjum
  • Toxín (Botox) til að meðhöndla hrukkur og fínar línu
  • Fylliefni til að slétta úr línum og hrukkum, bæta í varir, móta kinnbein og fylla upp í ör í andliti
  • Profhilo, laxasæði eða SkinPen ásamt exosomes fyrir húð sem vantar raka

Kjörið tækifæri til að prófa PRX peel, Aquagold eða Hydrafacial til að sjá hvernig húðin bregst við ef að það er hugsunin að gera einhverja af þeim meðferðum rétt fyrir stóra daginn.

3-6 mánuðum fyrir brúðkaup

6 mánuðum fyrir brúðkaup er enn tími til að gera meðferðir sem krefjast batatíma en ekki hægt að gera framkvæma margar meðferðarlotur

Til dæmis:

  • Laser við æðaslitum, roða, litaflekkir og æðaslitum
  • Einn til tveir tímar í Fraxel Pro til að þétta og jafna áferð húðarinnar
  • Toxín (Botox) til að meðhöndla hrukkur og fínar línu
  • Fylliefni til að slétta úr línum og hrukkum, bæta í varir, móta kinnbein og fylla upp í ör í andliti
  • Profhilo, laxasæði eða SkinPen ásamt exosomes fyrir húð sem vantar raka

Kjörið tækifæri til að prófa léttar meðferðir sem bæta áferð húðarinnar til að sjá hvernig húðin bregst við ef að það er hugsinin að gera meðferðina rétt fyrir stóra daginn

Dæmi um meðferðir:

  • Aquagold
  • Hydrafacial
  • PRX peel
  • Rakabooster

Þegar þrír mánuðir eða minna eru í brúðkaup mælum við ekki með því að prófa nýjar meðferðir eða húðvörur heldur einblína á þær meðferðir sem þú hefur prófað áður og veist hafa hafa jákvæð áhrif á húðina.  

2 mánuðum fyrir brúðkaup

Eftirfarandi meðferðir eru kjörið að fara í tveim mánuðum fyrir brúðkaup

  • Kjörið að setja botox og fylliefni fyrir fyrir brúðkaup
    • Mælum með að gera þessar meðferðir 6-8 vikum fyrir brúðkaup
  • Skin booster fyrir þær sem hafa prófað það áður t.d. Profilo, pólýnúkleotíð og BabyGlow
  • Aquagold 

Einum mánuði fyrir brúðkaup

Meðferðir sem við mælum með mánuðinn fyrir brúðkaup:

  • Aquagold er kjörin meðferð á þessum tíma
  • Hydrafacial er góð meðferð stuttu fyrir, jafnvel viku fyrir
    • Aðeins ef þú hefur prófað meðferðina áður
  • Ekki mælt með toxíni svo stuttu fyrir
  • Skin booster ef þú hefur prófað þá meðferð áður, t.d. Profhilo, laxasæði eða BabyGlow

Húðvörur

Gott er að koma sér upp góðri húðrútinu til að bæta áferð húðarinnar fyrir stóra daginn. Nýjar og virkar vörur geta ert húðina svo mikilvægt er að prófa nýjar húðvörur með góðum fyrirvara

Ekki er mælt með að prófa nýjar húðvörur þegar þrír mánuðir eða minna eru í brúðkaup.

Við mælum með að nota húðvörur sem innihalda virk efni ásamt vörum sem veita raka og vernd. 

  • Dæmi um virkar húðvörur:
    • Retínól
    • C vítamín serum
  • Mikilvæg er að vera dugleg að nota rakakrem
  • Sólarvörn

Mæður brúðhjónanna

Brúðkaupsdagurinn er ekki aðeins stór dagur fyrir brúðhjónin heldur einnig fyrir mæður þeirra, sem gegna oft mikilvægu hlutverki í hátíðarhöldunum. 
Hér að neðan má finna meðferðir sem henta sérstaklega vel fyrir mæður sem vilja dekra við sig:
  • Fraxel Pro hentar vel fyrir þá sem vilja þétta húðina, jafna áferð, vinna á fínum línum og hrukkum og viðhalda heilbrigði húðarinnar
  • Djúpur Erbium laser sem hentar vel fyrir djúpar hrukkur, sólskaðaða húð sem og lausa og þunna húð í andliti
  • Ultraformer hentar þeim sem vilja yngja og þétta húðina

 

Prentvæn útgáfa