Fara á efnissvæði

Hvaða vörur og meðferðir henta þér?

Með því að svara nokkrum spurningum getum við leiðbeint þér með mögulegar húðmeðferðir og viðeigandi vörur sem henta þinni húðgerð

Á hvaða aldri ert þú?

Hvaða húðgerð ertu með?

Hvaða húðvandamál ertu með/ hvað viltu leggja áherslu á að meðhöndla?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið einn valmöguleika.

Hefur þú áhuga á að hafa virk innihaldsefni í húðrútínunni?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið fleiri en einn valmöguleika.

...eitt að lokum

Með því að skrá þig á póstlista Húðlæknastöðvarinnar færð þú sérkjör auk upplýsinga um nýjar meðferðir, húðvörur, tilboð og almenna fræðslu.

Augnablik...

Ávaxtasýrumeðferð

Ávaxtasýrur vinna á efsta húðlaginu. Þær þétta húðina, vinna á fínum línum og hrukkum, opinni húð, bólum, fílapenslum og litabreytingum. Húðin verður sjáanlega yngri, ferskari og stinnari.

Istock 1403448976

Hvenær á þessi meðferð við?

Þessi meðferð hentar flestum húðgerðum. Styrkleiki sýru er valinn eftir húðgerð og húðvanda hvers og eins.
Sýrunar fjarlægja dauðar húðfrumur og örva náttúrulega starfsemi og endurnýjun húðarinnar.
 

Hverjir eru kostir og gallar ávaxtasýrumeðferðar?

Árangurinn er jafnara og sléttara yfirbragð, minna áberandi svitaholur, jafnari fituframleiðsla, aukinn raki og hreinni húð. Ein meðferð örvar starfsemi húðarinnar, en bestur árangur næst með 4–6 skiptum.  

Hvernig fer meðferðin sjálf fram?

Ávaxtasýru meðferðirnar eru framkvæmdar af faglærðu starfsfólki. Val á sýrum fer eftir húðgerð hvers og eins. Sýrurnar eru smurðar á húðina, látnar virka í ákveðinn tíma og svo skolaðar af.  

Hvað gerist eftir meðferðina

Eftir meðferð getur verið roði í húðinni í nokkra daga. Pirringur og þurrkur getur gert vart við sig og einnig getur húðin byrjað að flagna. Í sumum tilfellum getur orðið nokkur bólga en það fer eftir styrk sýru sem er notuð hverju sinni. Þessi einkenni minnka yfirleitt eftir því sem meðferðarskiptum fjölgar. 

Ekki er ráðlagt að nota farða,  gróf kornakrem eða virk efni ( t.d sýrur eða retinól) í nokkra daga eftir meðferð vegna þess hve húðin er opin og viðkvæm. Nota skal mildan hreinsi og rakakrem. Einnig skal varast sól þar sem húðin er ljósnæmari eftir meðferðina og því mikilvægt að nota sólarvörn með SPF 50.  

Prentvæn útgáfa