Ávaxtasýrumeðferð
Ávaxtasýrur vinna á efsta húðlaginu. Þær þétta húðina, vinna á fínum línum og hrukkum, opinni húð, bólum, fílapenslum og litabreytingum. Húðin verður sjáanlega yngri, ferskari og stinnari.
Hvenær á þessi meðferð við?
Þessi meðferð hentar flestum húðgerðum. Styrkleiki sýru er valinn eftir húðgerð og húðvanda hvers og eins.
Sýrunar fjarlægja dauðar húðfrumur og örva náttúrulega starfsemi og endurnýjun húðarinnar.
Hverjir eru kostir og gallar ávaxtasýrumeðferðar?
Árangurinn er jafnara og sléttara yfirbragð, minna áberandi svitaholur, jafnari fituframleiðsla, aukinn raki og hreinni húð. Ein meðferð örvar starfsemi húðarinnar, en bestur árangur næst með 4–6 skiptum.
Hvernig fer meðferðin sjálf fram?
Ávaxtasýru meðferðirnar eru framkvæmdar af faglærðu starfsfólki. Val á sýrum fer eftir húðgerð hvers og eins. Sýrurnar eru smurðar á húðina, látnar virka í ákveðinn tíma og svo skolaðar af.
Hvað gerist eftir meðferðina
Eftir meðferð getur verið roði í húðinni í nokkra daga. Pirringur og þurrkur getur gert vart við sig og einnig getur húðin byrjað að flagna. Í sumum tilfellum getur orðið nokkur bólga en það fer eftir styrk sýru sem er notuð hverju sinni. Þessi einkenni minnka yfirleitt eftir því sem meðferðarskiptum fjölgar.
Ekki er ráðlagt að nota farða, gróf kornakrem eða virk efni ( t.d sýrur eða retinól) í nokkra daga eftir meðferð vegna þess hve húðin er opin og viðkvæm. Nota skal mildan hreinsi og rakakrem. Einnig skal varast sól þar sem húðin er ljósnæmari eftir meðferðina og því mikilvægt að nota sólarvörn með SPF 50.