Fara á efnissvæði

Hvaða vörur og meðferðir henta þér?

Með því að svara nokkrum spurningum getum við leiðbeint þér með mögulegar húðmeðferðir og viðeigandi vörur sem henta þinni húðgerð

Á hvaða aldri ert þú?

Hvaða húðgerð ertu með?

Hvaða húðvandamál ertu með/ hvað viltu leggja áherslu á að meðhöndla?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið einn valmöguleika.

Hefur þú áhuga á að hafa virk innihaldsefni í húðrútínunni?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið fleiri en einn valmöguleika.

...eitt að lokum

Með því að skrá þig á póstlista Húðlæknastöðvarinnar færð þú sérkjör auk upplýsinga um nýjar meðferðir, húðvörur, tilboð og almenna fræðslu.

Augnablik...

Kalíumböð

Kalium (kalíumpermanganat) böð eru góð meðferð við exemi sérstaklega ef það er útbreitt og sýkt af bakteríum eða gersveppum. Þessi meðferð hefur verið notuð í marga áratugi og er notuð víða um heim.

Kaliumbod

Blanda á um það bil 3 millilítrum af 3% kalíum permanganat lausnar í hvern lítra af volgu vatni . Börnin liggja í baðinu um 10-20 mínútur. Varast skal að börnunum verði of kalt. Má nota baðolíu út í vatnið ef húðin er mjög þurr. Þurrka húð og smyrja svo með rakakremi eða kortisón kremi. Þetta má endurtaka 2svar til 3svar í viku . Lausnin litar, þvo þarf að baðkarið strax eftir notkun, einnig er gott að nota handklæði sem má verða blettótt. Gott er að nota hreinsilöginn Double play® til að ná brúna litnum burtu af baðkarinu.Til að hindra að neglur litist brúnar er gott að bera á þær vaselín fyrir baðið. Fyrir hendur eða fætur má nota bala eða kar og þá blanda lausnina á sama hátt.

Kalíum er sótthreinsandi basi í fljótandi formi sem er notaður til að þurrka sýkt sár og opna vessandi húð t.d. vegna exems og ýmissa blöðrusjúkdóma.

Blöndun.

Kalíumpermanganatis 3% er alltaf þynnt með vatni fyrir notkun.

3 ml kalíum í 1 lítra vatni.

15 ml kalíum í 5 lítra af vatni.

100 ml kalíum í 100 lítra af vatni.

Lausnin skal þó aldrei vera dekkri en svo að það sjáist vel í botninn á fatinu sem blandað er í.

Medferd.

Meðferðin er mis yfirgrips mikil eftir því hvaða svæði á að meðhöndla.

Afmarkað sár. Þvoið sárið og svæðið í kring eins og venjulega. Grisjur eru bleyttar í kalíumlausninni og lagðar ofan á sárið, Gott er að leggja undirlegg eða plastpoka yfir grisjurnar. Þetta er haft á í 15 mínútur. Sárið er ekki skolað eftir baksturinn, að lokum er búið um sárið.

Fætur/hendur. Þvoið krem eða önnur óhreinindi af höndum/fótum fýrir kalíummeðferðina. Berið vaselín á neglur svo að þær litist ekki. Lausninni er blandað í fat og hendur / fætur baðaðar í 15 mínútur. Ekki þvo húðina á eftir og þerrið hana lítillega þannig að efnið fái að liggja sem mest á húðinni.

Heilbað. Þegar meðhöndla á stærri líkamshluta eða allan líkamann er nauðsynlegt að blanda kalíum í baðkar.-Mikilvægt er að fara í sturtu áður og þvo krem eða önnur óhreinindi af húðinni. Berið vaselín á neglur svo að þær litist ekki af lausninni. Allur líkamann má fara í baðið nema höfuðið þar sem lausnin má ekki berast í augu, passið líka að hárið fari ekki í vatnið því það litast.

Ef axlir/bringa standa upp úr vatninu er gott að leggja klút vættan úr lausninni á þessi svæði eða ausa henni með lítilli dós yfir axlir/bringu. Ekki skola húðina eftir baðið og þerrið hana lítillega þannig að efnið fái að liggja sem mest á þenni. Legið er í baðinu í 15 mínútur.

Gott að vita.

Kalíum litar allt sem það kemst í snertingu við (baðkar, handklæði, neglur og hár) því ber að umgangast það með varúð. Fötin sem farið er í eftir baðið geta hugsanlega litast af húðinni. Gott er að bera matarolíu innan á baðkarið áður en rennur í það og láta renna úr því strax að baði loknu, þvo það síðan strax með ræstikremi en þannig má komast hjá því að baðkarið litist. Liturinn á húðinni hverfur hins vegar á nokkrum dögum.

Prentvæn útgáfa

Hafðu samband

Hafir þú einkenni eða þjáist af þeim sjúkdómum sem fjallað er um hér er hægt að bóka tíma hjá lækni.

Tímapantanir

9:00–12:00 og 13:00–15:30

Skiptiborð

520 4444