Fara á efnissvæði

Hvaða vörur og meðferðir henta þér?

Með því að svara nokkrum spurningum getum við leiðbeint þér með mögulegar húðmeðferðir og viðeigandi vörur sem henta þinni húðgerð

Á hvaða aldri ert þú?

Hvaða húðgerð ertu með?

Hvaða húðvandamál ertu með/ hvað viltu leggja áherslu á að meðhöndla?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið einn valmöguleika.

Hefur þú áhuga á að hafa virk innihaldsefni í húðrútínunni?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið fleiri en einn valmöguleika.

...eitt að lokum

Með því að skrá þig á póstlista Húðlæknastöðvarinnar færð þú sérkjör auk upplýsinga um nýjar meðferðir, húðvörur, tilboð og almenna fræðslu.

Augnablik...

Kláði í endaþarmi

Pruritus ani er latína og þýðir kláði í endaþarmi. Þetta er mjög algengt vandamál.

Þessi kláði getur komið frá  húðsjúkdómum sem eru á svæðinu, en oft sjást engin merki um neinn slíkan sjúkdóm. Þegar ekki er um að ræða húðsjúkdóm sem orsakar kláðann er talið að margir þættir geti orsakað þetta vandamál.

Orsakir

Hægðir geta smitast frá endaþarminum á nálæga húð og ert þannig. Bæði geta þetta verið bakteríur og hvatar og önnur efni. Sum þessara efna geta valdið snertiofnæmi.

Orsakir þessa hægðasmits geta verið:

1. Erfiðleikar við að hreinsa svæðið td vegna offitu, tíðni hægða, eða staðsetningar endaþarms og hárvaxtar þar í kring.
2. Hægðaleki, t.d. vegna gyllinæðar, sepa eða sprungna í endaþarminum. Getur einnig verið vegna slapps hringvöðva.
3. Bakteríusmit.  Oftast er þetta þó afleiðing en ekki orsök vandamálsins.
4. Matur og drykkur. Ekki er mikið vitað um þetta en sumir sjúklingar versna af vissum fæðutegundum, t.d. kaffi og hnetum.
5. Sálrænir þættir. Þetta er nú talið skipta minna máli en áður, og sálræn vandamál geta stundum orsakast af hinum sífellda kláða.

Meðferð

• Notið nærföt sem eru ekki þröng (Boxarabuxur).
• Finnist eitthvað sjúklegt við skoðun td stór gyllinæð eða sprungur þá er rétt að fá álit skurðlæknis.
• Notið sem minnst af kortisónkremum. Þó eru slík krem og stílar hjálpleg séu þau notuð í stuttan  tíma í einu.
• Eftir hægðir skal þrífa svæðið með blautum salernispappír eða kremservéttum sem fást í apótekum.
• Nuddið aldrei svæðið. Það heldur við kláðanum.
• Notið kláðastillandi krem t.d. Zink pasta með 2 % phenol fyrir og eftir hverjar hægðir, og einnig fyrir svefn.

Prentvæn útgáfa

Hafðu samband

Hafir þú einkenni eða þjáist af þeim sjúkdómum sem fjallað er um hér er hægt að bóka tíma hjá lækni.

Tímapantanir

9:00–12:00 og 13:00–15:30

Skiptiborð

520 4444