Fara á efnissvæði

Hvaða vörur og meðferðir henta þér?

Með því að svara nokkrum spurningum getum við leiðbeint þér með mögulegar húðmeðferðir og viðeigandi vörur sem henta þinni húðgerð

Á hvaða aldri ert þú?

Hvaða húðgerð ertu með?

Hvaða húðvandamál ertu með/ hvað viltu leggja áherslu á að meðhöndla?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið einn valmöguleika.

Hefur þú áhuga á að hafa virk innihaldsefni í húðrútínunni?

Vinsamlegast veldu það sem á við um þig. Þú getur valið fleiri en einn valmöguleika.

...eitt að lokum

Með því að skrá þig á póstlista Húðlæknastöðvarinnar færð þú sérkjör auk upplýsinga um nýjar meðferðir, húðvörur, tilboð og almenna fræðslu.

Augnablik...

Perioral Dermatitis

Perioral Dermatitis er nokkuð algengur húðsjúkdómur. Kemur oftar fyrir hjá kvenfólki. Sumir fá sjúkdóminn endurtekið jafnvel einu sinni á ári.

Húðsjúkdómur þessi kemur stundum hjá börnum og einnig eldra fólki. Orsök er óþekkt. Upp hafa komið tilgátur um of mikil notkun andlitskrema geti valdið þessu, eða jafnvel óþekktur sýkill. Vitað er að breytingarnar geta komið noti fólk sterk eða meðalsterk kortisónkrem í andlitið í nokkurn tíma.

Ástandið lýsir sér með litlum upphækkuðum bólum í húðinni kring um munninn, ásamt breytingum sem líkjast örsmáum graftrabólum.Roði er oft á svæðinu og stundum vægar exembreytingar eða þurrkur. Dæmigert er að húðin næst vörunum er oftast eðlileg að sjá Stundum eru breytingarnar ofar í andlitinu, td kring um augun.

Með réttri meðferð eru batalíkur góðar. Oftast nægir sýklalyf af Tetracýklín flokki í nokkrar vikur til að lækna sjúkdóminn til dæmis Doxytab eða skyld lyf. Einnig er hægt að nota sýklalyfið Erythromycin.
Í vægum tilfellum má reyna útvortis sýklalyf eingöngu td Dalacin vökva.

Perioral Dermatitis2
Perioral Dermatitis Pictures 1
Prentvæn útgáfa

Hafðu samband

Hafir þú einkenni eða þjáist af þeim sjúkdómum sem fjallað er um hér er hægt að bóka tíma hjá lækni.

Tímapantanir

9:00–12:00 og 13:00–15:30

Skiptiborð

520 4444