Ávaxtasýrumeðferð - MICROPEEL
Ávaxtasýrur vinna á efsta húðlaginu. Þær þétta húðina, vinna á fínum línum og hrukkum, opinni húð, bólum, fílapennslum og litaflekkjum. Húðin verður stinnari, þéttari og ferskari ásamt því að fá augljósan aukinn ljóma.
Fyrir meðferð:
- Þessi meðferð hentar hentar flestum húðgerðum. Styrkleiki sýru er valinn eftir húðgerð.
- Ekki er meðhöndlað á þunguðum konum né mjög viðkvæmri eða ertri húð.
- Árangurinn er jafnara og sléttara yfirbragð, minna áberandi svitaholur, jafnari fituframleiðsla, aukinn raki og hreinni húð.
- Ein meðferð örvar starfsemi húðarinnar en bestur árangur næst með 4-6 skiptum eftir því hver húðgerðin er, á 2.-4. vikna fresti.
- Ef þú notar Retinol skaltu hætta notkun 7-10 dögum fyrir meðferð.
- Ekki mæta með nýrakaða eða vaxaða húð.
- Afbóka tímann ef þú ert með frunsu.
Eftir meðferð:
- Eftir meðferð getur verið roði í húðinni í nokkra daga og sólarblettir/litabreytingar verða dekkri til að byrja með. Pirringur og þurrkur getur gert vart við sig og einnig getur húðin byrjað að flagna. Í sumum tilfellum getur orðið bólga. Þessi einkenni minnka yfirleitt eftir því sem meðferðarskiptum fjölgar.
- Ekki er ráðlagt að nota farða í amk sólarhring eftir meðferð vegna þess hve húðin er opin, ert og viðkvæm.
- Ekki vera í sól eða fara í ljósabekki 2-4 vikur eftir meðferð þar sem húðin er ljósnæmari á meðan meðferð stendur.
- Gott er að gefa húðinni góðan raka dagana eftir meðferðina og mælum við með að nota daglega SkinCeuticals Phloretin C-vitamin serum og Discoloration serum til að hámarka árangur. Einnig fæst góður raki með B5 serum og/eða Phyto Corrective serum eða mask. Þetta fæst í vefverslun hjá okkur.
- Ef mikil bólga, blöðrur eða sýkingamerki þá skaltu hringja í síma 520-4407/520-4412/520-4419 virka daga á milli 8-16 eða senda okkur póst á hudmedferdir@hls.is