- Húðlæknastöðin - https://hudlaeknastodin.is -

Ráðleggingar varðandi notkun retinóla og retinóíða vegna bóla (acne)

Retinóíðar eru A-vítamín sýrur sem hafa margvíslega virkni. Þessi efni eru grunnurinn í öflugum bólumeðferðum því þau minnka fituframleiðslu í fitukirtlunum, fækka fílapenslum og taka burtu dauðar húðfrumur sem geta stíflað kirtla ásamt húðfitu. Hins vegar gera retinóíðar svo miklu meira en bara þetta.  A-vítamín sýran binst viðtökum í kjarna húðfrumna sem meðal annars veldur því að umsetning eða endurnýjun þeirra verður hraðari. Þess vegna upplifa langflestir að húðin flagnar aðeins í byrjun meðferðarinnar þar sem húðin er að endurnýja sig. Þetta tímabil gengur yfir á nokkrum vikum. Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á að A-vítamín kremin örva nýmyndun kollagens í húðinni og vinni gegn örum í húðinni og þá sérstaklega gegn bóluörum.  A-vítamín krem eru besta mögulega bólumeðferðin í kremformi á markaðnum í dag. Ókostur þessarrar meðferðar er sá að flestir verða fyrst verri í húðinni þegar húðin er að hreinsa sig (tímabundið fleiri bólur) og árangur sést oft ekki fyrr en eftir 6–8 vikna meðferð. Flestir eru svo aftur farnir að sjá verulegan mun á húðinni eftir 12–16 vikna meðferð. Hér gildir að vera þolinmóður.

Retinóíðar eru sterk og virk krem og notkun þeirra þarf að trappa upp varlega. Sumir eru með sterka húð og þola hraðari upptröppun en hér eru leiðbeiningar sem virka vel fyrir flesta:

Vika 1-2: Notist þriðja hvert kvöld

Vika 3-4: Notist annað hvert kvöld

Frá viku 5: Notist á hverju kvöldi

Ef húðin er mjög viðkvæm er mælt með því að byrja á meðferðinni 2x í viku og dvelja 3-4 vikur á hverju stigi í upptröppununni.

Athugið að bera kremið/gelið á hreina húð og í þunnu lagi. Ekki fara nálægt augum og munnvikum þar sem húðin þar er mjög viðkvæm. Ef upp kemur erting í húðinni með roða, sviða eða brunatilfinningu, má prófa að bera olíulaust rakakrem á húðina 30 mínútum áður og 30 mínútum eftir meðferð. Ef það dugar ekki til, þá þarf að hægja ennfrekar á upptröppuninni.

Athugið að kremið eykur ljósnæmni húðarinnar og því ætti að lágmarka dvöl í sól (þar með talið ljósalömpum) á meðan á meðferð stendur.  Ráðlagt er að nota sólarvörn án olíu yfir sumartímann. Dæmi um góða sólarvörn fyrir bóluhúð eru Eucerin Mattifying Fluid SPF 50 (fæst í öllum apótekum), La Roche Anthelios XL Anti-Shine Dry Touch SPF 50+ [1] (fæst í Lyfjaveri Suðurlandsbraut) og sólarvarnirnar frá SkinCeuticals (fást hjá okkur á Húðlæknastöðinni) sem eru til bæði án lits (Ultra Facial Defense SPF 50+) og með lit (Mineral Matte UV Defense SPF 30 eða Mineral Radiance UV Defense SPF5 50).

Auk þess er mikilvægt að forðast þungun á meðan á meðhöndlun stendur.