Örameðferðir – Ör (scars)

Örameðferðir – Ör (scars)

Prenta

Örameðferðir

  1. Innfallin ör (rolling scars, box scars, ice-prick scars)
  2. Útistandandi ör (keloid, hypertrophic scar)

1. Meðferðir gegn innföllnum örum

Þrymlabólur (acne vulgaris) og innfallin ör vegna þeirra er eitt af algengustu húðsjúkdómunum sem við húðlæknar meðhöndlum. Það er mikilvægt að hafa í huga að ör eftir bólur eru mjög mismunandi og þar af leiðandi alls ekki ein meðferð sem hentar öllum. Oftast eru þau innfallin í húðina og sjást betur í vissri lýsingu sem skuggar í húðinni, en stundum geta þau verið útistandandi. Í meginatriðum ganga allar meðferðirnar út á það að minnka sýnileika þeirra og til þess notum við medical peel (sterkar ávaxtasýrur), lasera, örnálarmeðferð (Dermapen) eða jafnvel skurðaðgerðir og fylliefni eftir því hve djúp þau eru. 

Nokkrar staðreyndir um ör í húð:

  • Það er yfirleitt hægt að minnka sýnileika allra öra, alveg sama hve gömul þau eru
  • Húðgerðin, útlit öranna og batatíminn ráða mestu um hvaða meðferðir eru valdar
  • Ör geta verið bæði innfallin þar sem örið dregur niður yfirborð húðarinnar, og útistandandi þar sem örið bungar út
  • Innfallin ör eru mjög algeng eftir þrymlabólur (acne vulgaris) en geta einnig myndast eftir hlaupabólu, skaða á húð og eftir skurðaðgerðir
  • Við notum mikið djúpan laser eða “fractionell” picolaser og æðalaser ef mikill roði í örunum, en einnig medical peel með sterkum ávaxtasýrum (AHA) í vægari tilfellum, Dermapen, fylliefni og jafnvel skurðaðgerðir ef mjög djúp ör
  • Flestir ná einhverjum bata eftir meðferðina, algengt um 70-80% 
  • Hvert meðferðarplan getur tekið frá 2-14 mánuðum, en lengd meðferðarinnar fer eftir gerð og alvarleika öranna ásamt húðgerðinni

Hvað get ég búist við miklum árangri eftir örameðferð?

Flestir ná að meðaltali að minnsta kosti 70% bata. Ef örin eru mjög áberandi og bandvefur viðkomandi einstaklings tekur ekki vel við sér við meðferðina, þ.e.a.s. myndar ekki nægjanlegt kollagen, þá getur batinn kannski ekki orðið meiri en 50%. 

Af hverju þarf fleiri en eina meðferð gegn örum?

Innföllnum örum eftir þrymlabólur (acne scars) er í megindráttum skipt niður í nokkrar gerðir eftir útliti og dýpt, eða; rúllandi (rolling) ör, kassalaga (boxcar) ör og ísnála (ice-prick) ör.   Flestir hafa margar gerðir af örum í einu og þá þarf að beita ólíkum meðferðartegundum til að ná góðum árangri þar sem örin liggja misdjúpt í húðinni. Yfirleitt nær meðferðarplanið yfir 4-8 mánuði. 

Hvaða þættir hafa áhrif á hvaða árangur næst með meðferð gegn örum?

Það eru margir þættir sem hafa áhrif á árangurinn. Í fyrsta lagi er það gerð öranna og í öðru lagi húðgerðin þín. Flestir eru með blöndu af öllum örunum og þá þarf að setja upp meðferðarplan sem tekur á þeim öllum. Sjúklingar með grunn kassalaga ör (boxcar scars) og ljósa húð svara best og þurfa kannski ekki nema nokkur meðferðarskipti, á meðan sjúklingar með dökka húðgerð og blöndu af öllum örunum svara verst. Hér er yfirleitt ekki hægt að segja til um áður en meðferðin byrjar hve mörg meðferðarskipti þetta verða þar sem það er mjög einstaklingsbundið. 

Hvað gerir medical peel með sterkum ávaxtasýrum gegn örum?

Ef örin eru væg eða lítið sýnileg þá geta nokkur meðferðarskipti með sterkum ávaxtasýrum (medical peel) verið nægjanlegt. Athugið þó að þessi meðferð er ekki sambærileg ávaxtasýrumeðferðum sem eru framkvæmdar á snyrtistofum þar sem vægari ávaxtasýrur eru notaðar. Medical peel er mjög góð meðferð við ysta lagi húðarinnar og bætir því einnig við árangurinn eftir djúpa picolaserinn sem tekur örin í dýpri lögum húðarinnar. Rannsóknir hafa sýnt fram á að medical peel með sterkum ávaxtasýrum virkar betur á ör eftir þrymlabólur en örnálarmeðferð (Dermapen). Grunnreglan er þó að byrja alltaf á djúpa picolasernum sem tekur á djúpu örunum áður en ávaxtasýrumeðferðin er hafin. 

Hvað er “fractionell” laser og hvað gerir hann fyrir ör í húðinni?

Fractionell laser eða picolaser eins og við notum, virkar þannig að lasergeislinn sem er beindur að húðinni dreifist þannig að hann gerir mörg lítil göt í aðeins örlítinn hluta húðarinnar (fraction of the skin) og skilur eftir heila húð á milli gatanna. Hve djúpt hann fer og með hve miklum krafti stillum við fyrir hverja meðferð, en það fer eftir gerð öranna og húðgerð viðkomandi einstaklings. Þessi meðferð hefur verið notuð á Húðlæknastöðinni síðan þessi gerð af laserum kom á markaðinn fyrir  um það bil áratug síðan. Batatíminn er oftast 2-3 dagar þar sem töluverður roði og jafnvel bólga er í húðinni. Mjög misjafnt eftir einstaklingum. Mjög gott að kæla vel meðferðardaginn og daginn eftir. Árangurinn getur komið í ljós eftir einungis nokkrar vikur en hámarksárangur er oft ekki náð fyrr en eftir hálft ár þar sem bandvefurinn sem örvast getur verið mjög lengi að taka við sér. Við mælum með góðum rakakremum eftir meðferðina. Ráðlegt er að hætta að nota virk krem, t.d. retinóíða og AHA-sýrukrem, viku fyrir meðferðina. Forðast skal beint sólarljós (að meðtöldum ljósabekkjum) 2 vikum eftir meðferðina. Mælt er með þremur skiptum til að ná hámarksárangri, og þá láta líða 4-6 vikur á milli meðferða. Árangurinn er varanlegur. 

Hvað er  æðalaser og hvað gerir hann fyrir ör í húðinni?

Ef það er mikill roði í örunum þá notum við oft æðalaser til að minnka roðann áður en við forum út í aðrar örameðferðir. Gefur oft mjög góðan árangur. Hægt að lesa hér nánar um æðalaser.

Hvenær er gerð skurðaðgerð vegna öra?

Þegar að örin eru mjög djúp þá þarf stundum að skera þau í burtu. Það gerum við yfirleitt með litlum hringlaga hníf og saumum nokkur spor á eftir. Einnig notum við tækni sem kallast “subcision” ef örin eru föst við undirlagið og renna saman í stórt svæði. Þá er svæðið staðdeyft og farið með óbeittri nál undir húðina og örvefurinn losaður. Með þessari aðferð næst enn betri árangur með hinum meðferðunum sem koma svo í kjölfarið. 

Virka fylliefni sem meðferð gegn örum?

Fylliefni geta virkað mjög vel gegn innföllnum örum. Árangurinn kemur þá yfirleitt strax í ljós og batatíminn nær enginn. Sumir sjúklingar þurfa nokkur meðferðarskipti til að ná góðum árangri, eða 2-4 meðferðir, en margir þurfa bara eina meðferð. Þegar við notum fylliefnin sem meðferð við örum þá gerum við yfirleitt “subcision” um leið eða losum um örvefinn undir húðinni. Fylliefnin virkja svo nýmyndun kollagens og einnig virkjast viðgerðarferli húðarinnar við “skaðann” sem myndast í húðinni við bæði nálarstunguna og við losun örvefjarins. Stundum þarf að endurtaka meðferðina eftir 1-2 ár. Hægt að lesa hér nánar um fylliefni.

Virkar örnálarmeðferð (Dermapen) gegn örum?

Örnálarmeðferð eða Dermapen getur virkað gegn vægum, nýlegum örum. Dermapen örvar nýmyndun kollagens eins og djúpi picolaserinn en okkar reynsla era ð picolaserinn er mun áhrifaríkari og notum við því hann frekar en Dermapen sem örameðferð. Hægt að lesa hér nánar um Dermapen.

2. Meðferðir gegn útistandandi örum

Útistandandi ör eru tiltölulega algeng og þá helst eftir skurðaðgerðir eða eftir áverka á húðinni, en geta einnig komið eftir þrymlabólur (acne vulgaris). Þegar að það verða skemmdir í húð okkar þá bregst líkaminn okkar strax við með myndun bandvefs til að gera við skemmdirnar. Örin sem myndast eru oftast í húðhæð eða eðlileg, en stundum verða þau óeðlileg eða annað hvort innfallin, þar sem örið dregur húðina niður, eða útistandandi þar sem ofvöxtur í örvefnum hefur orðið og þau standa upp úr húðinni. Útistandandi ör kallast á ensku hypertophic scar eða keloid.

Myndaniðurstaða fyrir keloid scars

Hver er meðferðin gegn útistandandi örum?

Það er hægt að meðhöndla útistandandi ör á ýmsan hátt en yfirleitt byrjum við á lyfjameðferð þar sem við sprautum bólgueyðandi sterum í örið á mánaðarfresti. Hve oft fer eftir því hvernig örvefurinn svarar meðferðinni. Ef örvefurinn svarar illa er einnig hægt að prófa annað lyf sem heitir Bleomycin. Eftir þá meðferð metum við út frá því hvernig örið lítur út hvort við höldum áfram með lasermeðferð.