CoolTech líkamsmótun

CoolTech líkamsmótun

Prenta

CoolTech líkamsmótun
CoolTech fitueyðing er áhrifarík og varanleg fitueyðingarmeðferð. Meðferðin virkar þannig að með nákvæmri frystingu á líkamssvæði sem hafa safnað á sig óæskilegri fitu deyja fitufrumurnar og eru síðan fjarlægðar af sogæðakerfi líkamans. Svona fitueyðing með frystingu er möguleg vegna þess að fitufrumur líkamans eru mun næmari fyrir kulda en húðfrumurnar. Húðin helst því heil og óskemmd við meðferðina.  CoolTech fitufrystingin er örugg og fer fram án skurðaðgerðar. Meðferðin er nánast sársaukalaus og mun mildari en fitusog. Ekki er þörf á að fólk þurfi að taka frí frá vinnu til að jafna sig eftir meðferðina og ekki er þörf  á deyfingu eða svæfingu. Engar nálar eru notaðar. 

Hver meðferð tekur um 70 mínútur.

Fitufrystingarmeðferð með Cooltech hefur verið notuð á meira en 1 milljón einstaklinga og eru meira en 90% ánægðir með árangurinn. Margar ritrýndar rannsóknir hafa verið skrifaðar um meðferðina. Hvernig meðferðin fer fram má sjá á myndbandi hér að neðan.

Fyrir hverja er CoolTech líkamsmótun?

CoolTech líkamsmótun  er fyrst og fremst hugsuð fyrir fólk sem óskar eftir minni háttar lagfæringu á vissum stöðum líkamans, en ekki sem meðferð við almennri offitu.  Meðferðin er sérstaklega áhrifarík gegn „erfiðum“ svæðum, þ.e.a.s. svæði líkamans með fitu sem vill ekki hverfa við megrun eða líkamsrækt. Við fitufrystinguna fækkar þeim fitufrumum sem frystar eru og árangurinn verður sýnilegur eftir einungis eina meðferð.
Hægt er að meðhöndla kvið, síður, læri, mjaðmir, svæði kring um hné og rasskinnar. Allt að 25% minnkun á fitu á því svæði sem meðhöndlað er, getur sést eftir 1 meðferð.

Ekki er hægt að gera ráð fyrir að einstaklingar léttist við þessa meðferð. Til að árangur haldist þarf fólk að passa að þyngjast ekki því annars gæti sú fita komið á meðhöndluð svæði eins og á önnur svæði líkamans. Eins geta hormónaáhrif haft áhrif á varanleika meðferðar. Mælt er með skynsamlegu mataræði fyrir eða eftir meðferðir.

Hvernig virkar Cooltech líkamsmótunin?

Við CoolTech fitufrystingu deyja fitufrumur djúpt undir húð. Eins og fyrr segir er þetta vegna þess að fitufrumur eru mjög næmar fyrir kulda. Líkaminn þarf síðan til til að losa sig við fitufrumurnar og getur það tekið nokkrar vikur. Eftir um 12 vikur sést árangurinn að fullu en eftir um 4 vikur má sjá einhvern mun.

Eftir um 6-8 vikur eftir fyrstu meðferðina er óhætt að meðhöndla sama svæði aftur.

Flestir þurfa 2-3 meðferðir til að ná fullnægandi árangri og hjá sumum nægir jafnvel ein meðferð. Dreifing fitufrumna er mismunandi hjá fólki og skýrir það muninn á árangrinum.
Um 10% fólks svarar ekki Cooltech meðferðinni og hjá öðrum getur svæðið orðið aðeins óreglulegt eftir meðferðina

Hvernig fer CoolTech meðferðin fram?

Til að sem bestur árangur náist er best að bóka fyrst viðtal hjá starfsfólki Húðlæknastöðvarinnar til að gera áætlun um meðferðina og eins til að ganga úr skugga um að fólk hafi raunhæfingar væntingar um árangur. Skoða þarf ástand húðarinnar.
Í byrjun er svæðið sem meðhöndla á mælt og ljósmyndir af svæðinu teknar.

Á húðina yfir svæðinu sem meðhöndla á er lögð gelmotta til að verja undirliggjandi húð.
Cooltech hausinn sogar til sín fituvefinn og kælir síðan fituna undir húðinni þannig að þær fitufrumur sem meðferð er beint að deyja. Þær eru síðan teknar upp af sogæðakerfi líkamans í fyllingu tímans. Kælingin er -3 til – 8 gráður. Þegar líður á meðferðina dofnar húðin og vægu óþægindin af soginu hverfa. Mismunandi endastykki eru notuð eftir því hvaða líkamshluti er meðhöndlaður.

Öryggiskerfi er í Cooltech tækinu sem virkar þannig að kælingin hættir sjálfkrafa ef hún verður of mikil. Þetta er gert að að húðin yfir fitusvæðinu skemmist ekki.

Meðan á meðferð stendur getur viðkomandi slakað á lesið, hlustað á tónlist eða jafnvel unnið. Ekki er þörf á sérstökum tíma til að jafna sig eftir meðferð. Eftir hverja meðferð sem tekur húðin nokkuð rauð og vægt bólgin. Þá er svæðið nuddað af meðferðaraðila til brjóta niður fituvefinn og örva upptöku í sogæðakerfið.

Í stöku tilfellum getur húðskyn dofnað jafnvel í nokkrar vikur eftir Cooltech meðferð. Væg eymsli geta orðið í húð eftir meðferðina og jafnvel vægt mar.

CoolTech meðferðin getur valdið aukaverkunum sem eru það vægar að þær trufla ekki daglegar athafnir:
Það kemur alltaf roði á meðferðarsvæðið sem getur varað frá nokkrum mínútum upp í nokkra klukkutíma
Stundum getur mar komið á meðferðarsvæðið vegna sogsins
Flestir finna fyrir breyttu skyni, eins og dofa eða kitlandi tilfinningu, í svæðinu sem meðhöndlað er fyrst af stað. Það jafnar sig yfirleitt fjótt en í undantekningartilfellum getur það varað í allt að 8 vikur.
Sumir finna fyrir þreytutilfinningu með vægum hita í einn sólarhring
Flestir finna ekki fyrir neinum sársauka í byrjun meðferðarinnar, en sumir finna fyrir vægum sársauka fyrstu 10 mínúturnar
Flestir finna fyrir vægum sársauka í enda meðferðarinnar þegar að tækið er tekið af og húðin nudduð. Varir yfirleitt í u.þ.b. 10 mínútur en getur varið í 7 til 10 daga ef mikil bólga verður. Þá má taka parasetamól eftir þörfum, helst ekki bólgueyðandi eins og íbúprófen.


Það sem ber að varast:
Forðastu sólina og ljósameðferðir 5 dögum fyrir og eftir meðferð
Forðastu aðrar meðferðir eins og lasermeðferðir á sama meðferðarsvæði
Ekki er ráðlegt að framkvæma meðferðina ef mikið húðslit er á meðferðarsvæðinu, nýleg ör (yngri en 1 árs), kviðslit eða keloid ör

Cooltech fitufrysting er ekki fyrir:
þungaðar konur eða þær með barn á brjósti
einstaklinga með hita, flensulík einkenni eða virka sýkingu
sjúklinga með kviðslit
sjúklinga með virka húðsjúkdómaa, æðahnúta eða æðabólgur á meðferðarsvæðinu
sjúklinga með ofsakláða gegn kulda (cold urticaria) eða aukið næmi fyrir kulda
sjúklinga með sjálfsofnæmissjúkdóma í húð
sjúklinga með Raynaud´s sjúkdóm, cryoglobulinemiu eða blóð storkugalla
sjúklinga með langvinna hjarta-, æða- eða nýrnasjúkdóma
sjúklinga sem eru nýkomnir úr skurðaðgerð á meðferðarsvæðinu. Verða að líða a.m.k. 6 mánuðir frá aðgerð.

Nánari upplýsingar má fá í síma 5204444, í gegnum tölvupóst: timabokun@hudlaeknastodin.is eða með að senda okkur skilaboð í gegnum Facebook