- Húðlæknastöðin - https://hudlaeknastodin.is -

Aðgát í nærveru sólar

Árlega greinast að meðaltali um 45 manns með sortuæxli og tæplega 90 með önnur illkynja húðæxli. Um tíu Íslendingar deyja á ári úr þessum krabbameinum, þar af níu af völdum sortuæxla. Um 1.440 manns eru á lífi sem greinst hafa með þessa sjúkdóma. Sortuæxli er algengasta krabbameinið hjá ungum konum.
Tíðni sortuæxla hefur farið vaxandi á Norðurlöndunum á síðustu þrjátíu árum. Á Íslandi er tíðnin þó aðeins farin að lækka eftir að hafa verið mjög há. Einn helsti áhættuþáttur sortuæxla er sólbruni og ljósabekkjanotkun. Ekki er ólíklegt að minnkandi notkun ljósabekkja eigi þátt í lækkandi tíðni. Ísland var fyrst Norðurlandanna til að setja lög um 18 ára aldurs¬takmark varðandi ljósabekki. Rannsóknir sýna að koma má í veg fyrir allt að 90% tilfella sortuæxla og annarra húðkrabbameina með skynsamlegri hegðun í sól og með því að fara ekki í ljósabekki. Sérstaklega þarf að huga að því að verja börn í sól.
Epos kvikmyndagerð gerðu myndina fyrir Krabbameinsfélag Reykjavíkur. Styrktar- og samstarfsaðilar eru Adda Þóreyjardóttir Smáradóttir, Embætti landlæknis, Geislavarnir ríkisins, GlaxoSmithKline á Íslandi, Icepharma hf. og Roche.